Sigur hjá Íslendingaliðunum í Meistaradeildinni Anton Ingi Leifsson skrifar 15. nóvember 2015 15:49 Alexander í leik með Löwen. vísir/getty
Aron Pálmarsson og félagar í Veszprem unnu góðan sigur á Celje í Meistaradeild Evrópu í dag, en leikið var í Slóveníu. Lokatölur urðu þriggja marka sigur Veszprem, 30-27. Það var strax ljóst í hvað stefndi en gestirnir frá Ungverjalandi byrjuðu af miklum krafti. Þeir skoruðu þrjú fyrstu mörkin og voru komnir með sjö marka forystu, 11-4, þegar ekki var langt um liðið. Staðan í hálfleik var 17-11, en í síðari hálfleik reyndu heimamenn allt hvað þeir gátu til að minnka muninn. Þeir náðu að minnka muninn í þrjú mörk, en nær komust þeir ekki og Veszprem vann að lokum 30-27. Aron Pálmarsson spilaði ekkert í leiknum, en hann var hvíldur. Renato Sulic var markahæstur hjá Veszprem með átta mörk og næstur kom Momir Ilic með sjö. Hjá Celje var Luka Zvizej markahæstur með sex mörk. Veszprem fór upp i annað sætið með sigrinum, en þeir eru stigi á eftir PSG sem er á toppi riðilsins. Celje er í sjöunda sætinu með tvö stig eftir fyrstu sjö leikina. Rhein-Neckar Löwen vann sterkan útisigur á Montpellier í Frakklandi, en sá leikur var einnig í Meistaradeild Evrópu. Lokatölur urðu 30-28, Löwen í vil, eftir að refirnir höfðu leitt 16-15 í hálfleik. Kim Ekdahl du Rietz var markahæstur hjá Löwen með sjö mörk, en Alexander Petersson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum. Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Löwen fór upp í þriðja sæti riðilsins með sigrinum, en þeir eru með níu stig. Barcelona er á toppnum með ellefu og Vardar í því öðru með tíu. Montpellier er í sjötta sætinu með fjögur stig eftir leikina sjö.
Handbolti Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira