Lífstílsblogg gagnrýnd: „Hvaða færslur eru keyptar og hverjar ekki?“ Guðrún Ansnes skrifar 20. mars 2015 10:00 Lífstílsblogg eru gríðarlega vinsæl um þessar mundir. Visir/Getty
Svokallaðar lífstílsbloggsíður njóta sífellt aukinna vinsælda hér á landi. Á slíkum síðum má finna ráðleggingar frá bloggurum, sem alla jafna er fagfólk á sínu sviði, um hvernig eigi að tolla í tískunni og gefa góð ráð. Bloggararnir mæla gjarnan með tilteknum vörum og þjónustu. Sumir lesendur velta nú fyrir sér trúverðugleika bloggaranna og hafa heitar umræður skapast á samfélagsmiðlum í kjölfarið. Þar spyrja sumir lesendur hvort að markaðstengd öfl ráði för í umfjöllun á bloggsíðunum. Helga Eir GunnlaugsdóttirMynd/Helga EirEfast um sannleiksgildið „Satt best að segja er ég nánasthætt að taka mark á bloggurum og hristi bara hausinn yfir þessu,“ segir Helga Eir Gunnlaugsdóttir ein þeirra sem hefur tjáð sig um stöðuna. Hún segist nánast geta bent á þær færslur sem keyptar eru, en merkinga er iðulega ábótavant samkvæmt Helgu. „Væri ekki eðlilegt að bloggarar tilgreindu hvaða færslur væru keyptar og hverjar ekki?“ spyr hún. Matthildur Sveinsdóttir, löfræðingur neyendaréttarsviða hjá Neytendastofu segir stofnunina meðvitaða um að í einhverjum tilvikum geti verið um kostaða umfjöllun að ræða án þess að þess sé sérstaklega getið. Hún undirstrikar að reglum samkvæmt beri að greina á milli auglýsinga og annars efnis, hvort sem er í prentmiðlum,tímaritum eða á bloggsíðum, allt falli þetta undir sama hatt. „Þetta er í gangi og er eitthvað sem þarf að skoða nánar,“ segir Matthildur. Magnús Magnússon, sérfræðingur í netmarkaðsfræðum hjá Íslensku auglýsingastofunni,segir bloggara hljóta vaxandi vægis í markaðsmálum. Bloggarar hafi slíkt aðgengi að markhópum að um beina markaðssetningu sé að ræða þegar fyrirtæki nýti sér að auglýsa hjá þeim. Hann tekur jafnframt í sama streng og Matthildur, og bendir á að æskilegt sé taka fram sé um auglýsingar að ræða í bloggfærslum.Tinna AlavisMynd/Tinna AlavisMismunandi sjónarhorn Tinna Alavis er ein þeirra sem vakið hefur athygli fyrir bloggsíðu sína þar sem hún tekur allt milli himins og jarðar fyrir.„Ég býð upp á kostaðar færslur en fjalla einungis um vörur sem ég hef prófað sjálf og get mælt með fyrir mína lesendur,“ segir Tinna og bætir við „það fer eftir því hvernig samkomulagið er við fyrirtækin hverju sinni hvort ég taki fram að færslan sé keypt.“ Erna Hrund Hermannsdóttir,sem heldur úti síðunni Reykjavík Fashion Journal, segist ekki bjóða uppá keypta umfjöllun. Það hafi hún prófaði einu sinni en látið þar við sitja. „Ef ég fjalla um vörur sem mér hafa verið sendar gæti ég þess að hafa sérútbúna klausu sem upplýsir lesendur um það,“ útskýrir Erna. Aðrir bloggarar sem blaðamaður setti sig í samband við sóru af sér allt sem kalla mætti keypta umfjöllun og báru sumir við að lesendur væru líklega að gera sér upp hugmyndir um að færslur væru keyptar þegar þær væru það ekki. Þegar helstu lífstílsbloggsíður landsins eru skoðaðar kemur í ljós að sárafáar tileinka sér að gera slíkum upplýsingum skil.
Tengdar fréttir Tískuárið 2014: Normcore og hvítir skór Tískan á árinu sem er að renna sitt skeið var fjölbreytt að venju. 28. desember 2014 11:00 Ígló&Indý njóta vinsælda hjá erlendum tískubloggurum Guðrún Tinna Ólafsdóttir segir mikla möguleika á samfélagsmiðlum fyrir fyrirtæki og sá markaður fari sífellt stækkandi hér heima. 3. nóvember 2014 11:00 Einn vinsælasti bloggari Bretlands Tanya Burr er einn vinsælasti Youtube-bloggari Bretlands. Hún heldur úti líflegri síðu á Youtube þar sem hún hleður inn fjölbreyttum myndböndum, en 6,5 milljónir manna fylgjast með henni í hverjum mánuði. 24. nóvember 2014 17:00 Mest lesið Sama hvað öllum finnst, nema mömmu og pabba Tónlist Sat uppi með útgáfu af sjálfri sér sem hún kunni ekki við Lífið Fréttatía vikunnar: Play, fiskbúðingur og stjörnuskilnaður Lífið Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið Ungir Sjálfstæðismenn samankomnir á sambandsþingi Lífið Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Tónlist Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Gagnrýni „Rétturinn sem fjölskyldan þín mun elska og biðja um aftur og aftur“ Lífið Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Lífið samstarf „Ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist“ Lífið Fleiri fréttir Fann ástina í örlagaríkum kjól Íslensk fyrirsæta slær í gegn á tískupöllum Mílanó Kláraði lögfræði meðan hún sat fyrir hjá Dior Heitasta handatískan í dag Íslenski hönnuðurinn sem Dorrit dýrkar Með sálfræðigráðu á leið í skartgripahönnun í Róm Heklaði á sig forsýningarkjólinn Sjóðheit stemning á rauða dreglinum Ástin sigrar í nýrri herferð gegn ofbeldi Í þrjátíu ára gömlum fötum af mömmu Tískan við þingsetningu: Þjóðlegur þriðjudagur Rokkar pils sem bol og snýr flíkum öfugt Fögnuðu Þjóðbúningadeginum með stæl Fáklædd og flott á dreglinum „Hugsa fallega til stelpunnar sem ég var þá“ Þjóðbúningurinn aðal skvísuflíkin í dag Aðalfyrirsæta í herferð 66°Norður 99 ára gömul Búið að krýna nýjan arftaka Vogue-veldisins Sjá meira
Tískuárið 2014: Normcore og hvítir skór Tískan á árinu sem er að renna sitt skeið var fjölbreytt að venju. 28. desember 2014 11:00
Ígló&Indý njóta vinsælda hjá erlendum tískubloggurum Guðrún Tinna Ólafsdóttir segir mikla möguleika á samfélagsmiðlum fyrir fyrirtæki og sá markaður fari sífellt stækkandi hér heima. 3. nóvember 2014 11:00
Einn vinsælasti bloggari Bretlands Tanya Burr er einn vinsælasti Youtube-bloggari Bretlands. Hún heldur úti líflegri síðu á Youtube þar sem hún hleður inn fjölbreyttum myndböndum, en 6,5 milljónir manna fylgjast með henni í hverjum mánuði. 24. nóvember 2014 17:00