Uppistandsæði skekur íslensku þjóðina Guðrún Ansnes skrifar 19. september 2015 10:00 Rúnar Freyr Gíslason segir mikilvægt að vera óttalaus þegar uppistand er flutt. „
Þú þarft alveg að vera dálítið klikkaður,“ segir Rúnar Freyr Gíslason, einn dómaranna í Open Mic, eða Orðið er frjálst, keppni sem haldin er í tengslum við Reykjavík Comedy Festival og fer fram 23. október næstkomandi.„Hugmyndin er sú að fólk sendi inn myndbönd af sér á visir.is, þar sem þau safnast saman og dómnefndin fer yfir. Þar verða sigtaðir úr tuttugu grínistar og lesendur visir.is fá svo það verkefni að velja átta bestu úr. Í framhaldinu munu þeir stíga sín fyrstu skref í uppistandsbransanum, í sjálfu Silfurbergi í Hörpu,“ útskýrir Rúnar, þó nokkuð spenntur. Auk hans munu þeir Jóhannes Haukur Jóhannesson og Ísleifur B. Þórhallsson skipa dómnefnd, en Jóhannes Haukur mun að auki sinna hlutverki kynnis í Silfurbergi. Aðspurður um hvaða kostum grínistar þurfi að búa yfir, ætli þeir sér að taka þátt í fjörinu, segir Rúnar allra mikilvægast að vera óttalaus. „Að fara með sitt eigið efni fyrir framan fullan sal af fólki þar sem krafa er gerð um að þú sért ógeðslega fyndinn, er ekkert grín. Ég fæ í magann bara við tilhugsunina. Ég meina, kannski hlær enginn,“ bendir hann á og segir svo alvarlegur í bragði: „En svo verður fólk að átta sig á að menn geti hæglega orðið háðir þessu, það er að segja ef vel gengur.“ Þá segir Rúnar frumlegheit skipta sköpum, að geta gripið eitthvað í daglega lífinu og bent áhorfendum á húmorinn í því sé gulls ígildi. Gerir hann ráð fyrir að úr nógu verði að moða. „Það er eitthvert uppistandsæði í gangi á landinu núna. Hingað hafa verið fluttir inn uppistandarar hægri vinstri, og það er alltaf uppselt strax.“
Tengdar fréttir Ráðherrar lofa Everest Nokkrir af ráðherrum þjóðarinnar voru staddir á frumsýningu Everest, stórmyndar Baltasar Kormáks. Lífið leitaði til ráðherranna og spurði þá hvað þeim fannst um myndina, sem hefur fengið jákvæð viðbrögð víða um heim. 19. september 2015 09:00 Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Sjá meira
Ráðherrar lofa Everest Nokkrir af ráðherrum þjóðarinnar voru staddir á frumsýningu Everest, stórmyndar Baltasar Kormáks. Lífið leitaði til ráðherranna og spurði þá hvað þeim fannst um myndina, sem hefur fengið jákvæð viðbrögð víða um heim. 19. september 2015 09:00