Frábær endasprettur Hlyns og Drekanna kom of seint í Norrköping Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2015 18:30 Hlynur Bæringsson og Pau Gasol. Vísir/Valli
Hlynur Bæringsson og félagar í Sundsvall Dragons náðu ekki að fylgja eftir sigri í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar þegar liðið heimsótti sterkt lið Norrköping Dolphins í öðrum leik sínum í kvöld. Norrköping Dolphins, sem var að spila sinn fyrsta leik á tímabilinu, vann leikinn með fjögurra stiga mun, 73-69. Drekarnir lentu mikið undir en tókst að koma sér inn í leikinn með góðri þriggja stiga skotnýtingu í seinni hálfleiknum. Hlynur var með fjórtán stig, níu fráköst og tvær stoðsendingar í leiknum en hann hitti úr 3 af 6 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Hlynur spilaði allar 40 mínúturnar í leiknum. Það gekk ekkert inn í teig hjá Sundsvall í leiknum og liðið var með mun betri skotnýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna (40 prósent) en utan hennar (31 prósent). Leikmenn Norrköping gáfu tóninn strax í byrjun með því að vinna fyrsta leikhlutann 24-13 og þeir voru síðan tólf stigum yfir í hálfleik, 45-33. Norrköping komst fjórtán stigum yfir í upphafi seinni hálfleiksins, 47-33, en næstu sjö stig voru skoruð af leikmönnum Drekanna sem komu muninum niður í fimm stig. Norrköping gerði hinsvegar nær út um leikinn með því að skora átta síðustu stig þriðja leikhlutans og var þrettán stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 58-45. Sundsvall minnkaði muninn aftur niður í átta stig eftir þrist frá Hlyni og munurinn var aðeins fimm stig þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir. Það var því spenna á lokamínútunum en Hlynur minnkaði muninn í tvö stig, 71-69, með því að setja niður tvö víti 45 sekúndum fyrir leikslok. Hlyni og félögum tókst ekki að vinna upp muninn þrátt fyrir frábæran endasprett sem þýddi fyrsta tapið á tímabilinu.
Körfubolti Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira