Eru dómarar líka menn? Hjördís Birna Hjartardóttir skrifar 13. október 2015 07:00 Mikið hefur verið skrifað um skipan Hæstaréttar undanfarna daga og vikur í framhaldi af því að fimm (karl)manna dómnefnd komst að þeirri niðurstöðu að Karl Axelsson væri hæfastur til að gegna embættinu. Innanríkisráðherra ákvað að fylgja tilmælum nefndarinnar, líkt og viðbúið var, en hefur að sama skapi gefið í skyn að hún hyggist gera breytingar og horfa í þeim efnum til framtíðar. Það er talsvert tabú meðal lögmanna að tjá sig um dómara. Lögmenn hafa að sjálfsögðu sterkar skoðanir á dómurum bak við luktar dyr skrifstofunnar, en þeir ræða þær skoðanir treglega opinskátt. Af hverju? Af því að lögmenn flytja mál sín frammi fyrir þessum sömu dómurum og eiga velgengni sína – eða réttara sagt velgengni skjólstæðinga sinna – undir dómum þeirra. Þessi tregða við gagnrýni á sérstaklega við um Hæstarétt. Það er líka vel þekkt meðal lögmanna að þeir vilja frekar að málin sín lendi hjá þessum dómara heldur en hinum. Af hverju? Af því að lögmenn kunna betur við suma dómara en aðra og treysta sumum dómurum betur en öðrum til að komast að „réttri“ niðurstöðu.Mótsögn Í þessu er ákveðin mótsögn. Mjög snemma í lögfræðinámi er laganemum kennt að dómarar skuli vera sjálfstæðir og óvilhallir; að þegar dómari klæði sig í skikkjuna afklæðist hann í raun persónu sinni og beiti einungis lögunum. Þetta er einmitt það sem Jón Steinar byggir málflutning sinn á þessa dagana, þ.e. að dómarar séu ekkert annað en þjónar réttarins. Jón hefur reyndar líka ásakað Hæstarétt um mikla persónulega andúð í sinn garð, reyndar svo mikla að hann hafi ákveðið að hætta að flytja mál fyrir réttinum vorið 2004, áður en hann var skipaður dómari. Jón á einnig fordæmalausan fjölda sératkvæða sem dómari við réttinn. Samt var hann að beita sömu lögum og allir hinir. Hvað veldur? Skiptir kannski einhverju máli hver persónan er sem dæmir? Hugmyndin um dómarann sem afklæðist persónu sinni er göfug, en er hún raunveruleg? Var það t.d. einskær tilviljun að í svokölluðu „Hells Angels“ máli, þar sem Hæstiréttur var skipaður fjórum karldómurum og einum kvendómara, að það var eingöngu kvendómarinn sem vildi sakfella fyrir nauðgun? Eða var það einskær tilviljun að sama ár var sami kvendómari sá eini (af fimm) sem vildi sakfella fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára barni? Ég legg áherslu á að kvendómarinn var að beita sömu lögum og karlkyns samdómendur hennar. Ætlum við að láta eins og kyn hafi ekki skipt neinu máli í þessu samhengi? Óttumst við kannski að ef við viðurkennum að kynferði dómara skiptir máli sé búið að eyðileggja göfugu hugmyndina um skikkjuklæddu og persónulausu veruna?Innihaldslausir frasar Lögmenn eru í reynd löngu búnir að viðurkenna að þessi vera er ekki til. Þess vegna forðast þeir að styggja dómara og kjósa ákveðna dómara umfram aðra. Það er ekki fyrr en við förum að tala um kynferði og hæfi í sömu setningunni, og augljósan skort á kvendómurum í Hæstarétti, sem menn byrja að dusta rykið af innihaldslausum frösum um þjóna réttarins. Að mínu mati er það einfeldningsháttur að halda að reynsla og persónulegir eiginleikar dómara muni ekki hafa áhrif á störf hans. Hjá því verður ekki komist. Það þýðir ekki að hann eða hún sé verri dómari. Það þýðir heldur ekki að dómarar hætti að beita hinni lagalegu aðferð og byrji niðurstöðukafla dóma á „mér finnst“. Það þýðir bara að dómarar eru manneskjur og hætta ekki að vera manneskjur þegar þeir klæða sig í skikkjuna. Þess vegna viljum við að Hæstiréttur endurspegli samfélag okkar betur. Það er eðlileg og málefnaleg krafa. Gott fyrsta skref til að nálgast það markmið væri að taka af allan meintan vafa um að jafnréttislög gilda um skipan dómnefndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun