Ætlar að lýsa upp kirkjuna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. október 2015 10:15 „Litli turninn var erfiðastur viðfangs,“ segir Ragnhildur sem hafði kirkjutröppurnar upprunalegar. Vísir/GVA „
Kirkjan er frumraun mín í módelsmíði,“ segir Ragnhildur Þórðardóttir um nákvæmt líkan sem hún hefur gert af Auðkúlukirkju í Svínadal sem vígð var 1894. Hvernig fór hún að því? „Ég fann nákvæma teikningu í bókinni Kirkjur Íslands og minnkaði hana. Svo sneið ég líkanið úr stífum pappa, eins og notaður er í bókarkápur, og klæddi það allt með litlu timbri, svo það liti út eins og upprunakirkjan.“ Spýturnar kveðst Ragnhildur hafa sagað til svo að þær féllu rétt saman og pússað hverja og eina þannig að þær yrðu kúptar. „Þetta er mikið nákvæmnisverk,“ viðurkennir hún og nefnir meðal annars fínlegar súlur sem standa upp úr þakinu og litla krossa á þeim sem eru búnir til úr tannstönglum. „Það eina sem ég keypti voru kúlurnar sem eru undir krossunum. Það var mikill vandi að búa til efsta turninn. Heilmikið mál,“ segir hún og bætir við: „Ég get lyft þakinu upp og þegar fer að dimma meira í kringum mig ætla ég að hafa ljós inni í kirkjunni.“ Ragnhildur er uppalin á Grund í Svínadal og hefur búið á Merkjalæk í sömu sveit frá 1978. Hún dvelur þó í Reykjavík að vetrinum og kynntist fyrst útskurði í Gerðubergi árið 2006 undir leiðsögn Einars Jónassonar sem einnig kennir líkanasmíði. Hún kveðst hafa gaman af hvorutveggja og öllu handverki enda hafi hún lengi prjónað og saumað, mótað keramik og málað postulín. Auðkúlukirkja er sóknarkirkja Ragnhildar. „Séra Stefán M. Jónsson, fóstur-langafi minn, lét byggja hana á eigin kostnað,“ segir Ragnhildur, „og enginn veit hvaðan hann fékk hugmyndina að útliti hennar.“
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira