Guðjón Valur með fjögur mörk í öruggum sigri | Úrslit dagsins Kristinn Páll Teitsson skrifar 10. október 2015 20:15 Guðjón Valur var öflugur að vanda. Vísir/getty
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Barcelona unnu sannfærandi tíu marka sigur á Montpellier á útivelli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag en spænska liðið hefur nú unnið þrjá leiki í röð í keppninni. Eftir tap gegn Alexanderi Peterssyni, Stefáni Rafni Sigurmannssyni og félögum í Rhein-Neckar Löwen í fyrstu umferð tókst Börsungum að leggja sænska félagið Kristianstad og ungverska félagið Szeged að velli fyrir leik dagsins. Sigur Barcelona í dag var sannfærandi en spænska félagið leiddi með sjö mörkum í hálfleik í stöðunni 19-12 og bætti við forskoti í seinni hálfleik. Lauk leiknum með tíu marka sigri Börsunga og setti Guðjón Valur fjögur mörk í leiknum. Alexander og Stefán komust ekki á blað í 19-25 tapi Löwen gegn Vardar á útivelli í dag en góður seinni hálfleikur leikmanna Vardar skóp sigurinn. Leiddi Vardar 11-10 í hálfleik en gerði út um leikinn í seinni og vann að lokum sex marka sigur.Lærisveinar Alfreðs slátruðu pólska félaginu Wisla Plock á útivelli.Vísir/gettyÞá unnu lærisveinar Alfreðs Gíslasonar öruggan sigur á pólska félaginu Wisla Plock í Póllandi í dag en þýska félagið leiddi með tíu mörkum að fyrri hálfleik loknum. Þýsku meistararnir bættu við forskot sitt í seinni hálfleik og unnu að lokum öruggan fjórtán marka sigur, 37-23, en þetta var þriðji sigurleikur Kiel í röð eftir tap í fyrstu umferð.Úrslit dagsins í Meistaradeild Evrópu: Presov 19-27 Vojvodina Kilece Vive 35-27 Kristianstad Vardar 25-19 Rhein-Neckar Löwen Barcelona 37-27 Montpellier Porto 31-27 Chekhovskiye Medvedi Wisla Plock 23-37 Kiel
Handbolti Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Sjá meira