Ólafur Bjarki öflugur í tapleik gegn Wetzlar | Öll úrslit dagsins Kristinn Páll Teitsson skrifar 10. október 2015 20:00 Ólafur Bjarki í leik með íslenska landsliðinu gegn Þýskalandi. Vísir/getty
Ólafur Bjarki Ragnarsson átti góðan leik í liði Eisenach í 25-29 tapi gegn Wetzlar á heimavelli í lokaleik kvöldsins í 9. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar en með sigrinum skaust Wetzlar upp í 4. sætið. Eftir að hafa fengið skell í síðustu umferð gegn Hamburg mættu leikmenn Eisenach mun grimmari til leiks í dag en voru 11-13 undir í hálfleik. Leikmönnum Wetzlar tókst að bæta við forskotið í seinni hálfleik og unnu að lokum fjögurra marka sigur. Ólafur Bjarki átti öfluga rispu í seinni hálfleik er hann setti þrjú mörk á tveimur mínútum en hann setti alls fimm mörk í liði Eisenach og var næst markahæstur á eftir Azat Valiullin. Arnór Þór Gunnarsson, Björgvin Páll Gústavsson töpuðu í kvöld öðrum leiknum í röð í 30-35 tapi gegn Ballingen-Weilstetten á heimavelli Bergischer. Arnór komst á blað með þrjú mörk en Björgvin varði 7 skot í leiknum. Rúnar Kárason komst á blað með eitt mark í 25-31 tapi Hannover-Burgdorf á heimavelli gegn Leipzig en á sama tíma komst Gunnar Steinn Jónsson ekki á blað með liði Gummersbach í 26-20 tapi gegn Lemgo á útivelli. Það var hinsvegar boðið upp á íslenska markasúpu í leik Emsdetten og Dormagen í 2. deildinni í kvöld en Oddur Gretarsson var atkvæðamestur í liði Emsdetten með átta mörk. Leiknum lauk með 30-25 sigri Emsdetten en Ernir Arnarson og Anton Rúnarsson komust báðir á blað með tvö mörk hvor.
Handbolti Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira