Tugir létust í loftárásum á sýrlensku borgina Idlib Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. desember 2015 17:42 Frá borginni Idlib í dag. vísir/getty
Að minnsta kosti 43 létust í dag í loftárásum á borgina Idlib í Sýrlandi. Borgarbúar segja að Rússar séu ábyrgir fyrir árásunum en Rússar hafa sjálfir ekki staðfest að þeir séu á bak við árásirnar. Markaðstorg í borginni, heimili fólks og opinberar byggingar voru á meðal þess sem sem skotið var á í árásunum, að því er fram kemur í frétt BBC. Rússar hófu loftárásir í Sýrlandi í september til að styðja við baráttu stjórnarhersins í landinu gegn uppreisnaröflum. Að sögn Rússa eru skotmörk þeirra einungis hryðjuverkamenn, sem flestir tengjast hryðjuverkasamtökunum ISIS. Samtök sem vilja Assad Sýrlandsforseta burt segja hins vegar að árásir Rússa hafi flestar beinst að uppreisnarmönnum sem njóta stuðnings Vesturlanda. Að sögn samtakanna slösuðust að minnsta kosti 170 manns í árásunum á Idlib í dag. Uppreisnarmenn sem berjast gegn stjórnarhernum í Sýrlandi náðu völdum í Idlib fyrr á þessu ári. Stríðið í Sýrlandi hefur nú staðið í tæp 5 ár og hafa 250 þúsund manns látist og milljónir þurft að flýja heimili sín.
Mið-Austurlönd Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Fleiri fréttir Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Sjá meira