Sport

Haraldur Nelson: Maia hefur aldrei verið betri en núna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sem fyrr þá fylgir Haraldur Dean  Nelson syni sínum, Gunnari, í bardaga hans í Las Vegas. Faðirinn og umboðsmaðurinn veit að sonurinn er að fara í erfiðasta bardaga lífs síns.

„Hann er fimmfaldur heimsmeistari og sjötti á styrkleikalistanum. Þetta er snillingur í gólfinu og þetta verður mjög áhugavert,“ segir Haraldur og brosir en þetta er allt annað en þegar Gunnar mætti hinum unga Brandon Thatch síðasta sumar.

Sjá einnig:Maia: Ég er betri en Gunnar Nelson í gólfinu | Myndband

„Það er athyglisvert með Maia að hann er 38 ára og hefur aldrei verið betri en núna. Hann hefur fengið aukakraft upp á síðkastið. Það verður gríðarlega gaman að sjá þessa gólfglímumenn takast á,“ segir Haraldur við Vísi.

„Það hefur mikið verið talað um að ef Maia vinni Gunna þá fái hann titilbardaga næst. Það er því gríðarlega mikið undir hjá honum og hann þarf enga sérstaka hvatningu til að standa sig í þessum bardaga. Okkar maður þarf það ekki heldur og hann er meira en tilbúinn.“

Faðirinn hefur aldrei viljað spá mikið um bardaga sonarins áður en hann stígur inn í búrið en hann var þó fáanlegur til að tjá sig aðeins um hverju hann ætti von á.

Sjá einnig:Jón Viðar: Sigur gerir Gunna heimsfrægan

„Þeir byrja standandi. Það er klárt. Það er erfitt að segja til um þetta. Ég veit að Gunna langar með honum í gólfið en hann tekur því sem kemur,“ segir Haraldur. 

„Gunnar mun ekki endilega stýra bardaganum í gólfið en hann mun heldur ekki hræðast það. Margir halda að þessi bardagi fari bara fram bardagi því gólfglíman núlli þá út. Ég er ekki viss um það. Ég held að Gunni muni slá hann niður,“ segir Haraldur og bætir við að púlsinn verði hátt uppi eins og venjulega er sonurinn berst.

Bardagakvöldið stóra með Gunnari Nelson og Conor McGregor verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Hægt er að kaupa áskrift á 365.is. Íþróttadeild 365 er í Las Vegas og flytur ykkur nýjustu tíðindi. Fylgstu með á Facebook, Twitter og Snapchat: sport365.

MMA

Tengdar fréttir

Víkingaför Gunnars Nelson um heiminn

Gunnar Nelson heyr sinn sjöunda UFC-bardaga á ferlinum aðfaranótt sunnudags þegar hann glímir við Demian Maia. Stokkhólmur er eini staðurinn þar sem honum hefur ekki tekist að vinna sigur í UFC.

UFC-veisla í Vegas

UFC 194 er ekki eina UFC-kvöldið í Las Vegas þessa vikuna því UFC býður til veislu þrjá daga í röð.

Gunnar Nelson mætir goðsögn í UFC-heiminum

Brasilíumaðurinn Damian Maia er meira en tilbúinn fyrir bardagann gegn Gunnari Nelson annað kvöld. Þó að hann sé aðeins kominn á aldur segist hann eiga nóg eftir og stefnir á heimsmeistaratitil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×