Sport

Gunnar Nelson mætir goðsögn í UFC-heiminum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Maia vann Bandaríkjamanninn Neil Magny á uppgjafartaki í annarri lotu þegar kapparnir mættust í Ríó í Brasilíu í byrjun ágústmánaðar.
Maia vann Bandaríkjamanninn Neil Magny á uppgjafartaki í annarri lotu þegar kapparnir mættust í Ríó í Brasilíu í byrjun ágústmánaðar. Vísir/Getty
Gunnar Nelson hefur talað um að það sé frábært að ná að keppa gegn Brasilíumanninum Damian Maia áður en hann hættir. Maia er tiltölulega nýorðinn 38 ára og á glæsilegan feril að baki. Miðað við orð hans er nóg eftir af þeim ferli og Gunnar hefði þess vegna getað mætt honum eftir nokkur ár.

„Mér líður sífellt betur síðustu árin. Líkaminn er í góðu standi og ég vonast til þess að keppa í þrjú til fjögur ár í viðbót. Ef ég held áfram að bæta mig þá mun ég halda áfram að berjast.“

Maia er goðsögn í UFC-heiminum sem og í jiu jitsu-heiminum. Þar er hann fimmfaldur meistari. Hann var fyrst í millivigt og færði sig síðan í veltivigtina. Hann hefur staðið sig frábærlega í báðum þyngdarflokkum og mætt mörgum af betri bardagamönnum í sögu UFC.

Sjá einnig:Maia: Ég er betri en Gunnar Nelson í gólfinu

Nægir þar að nefna menn eins og Anderson Silva, Chael Sonnen, Chris Weidman (núverandi heimsmeistari í millivigt sem keppir líka á laugardaginn), Dong Hyun Kim og Rick Story, sem er sá eini sem hefur unnið Gunnar. Maia kláraði Story í fyrstu lotu. Hann er því gríðarlega reyndur og hefur aldrei tapað í veltivigtinni á rothöggi eða hengingu.

Eftir tvö töp í röð síðla árs 2013 og í byrjun árs 2014 fóru margir að afskrifa þennan frábæra bardagamann. Þá herti hann sig upp og er búinn að vinna þrjá bardaga í röð. Það gegn mönnum sem hafa verið á topp 15 á styrkleikalistanum. Sjálfur er Maia í sjötta sæti þar en Gunnar í því tólfta.

Gunnar hefur einnig talað um að sigur gegn Maia, sérstaklega sannfærandi, muni skjóta honum upp styrkleikalistann og koma honum nálægt titilbardaga. Maia hugsar nákvæmlega það sama.

„Ég stefni á beltið og það er ástæðan fyrir því að ég samþykkti þennan bardaga. Ég veit að Gunnar er hátt skrifaður hjá bæði UFC og aðdáendum íþróttarinnar. Þeim finnst hann vera frábær bardagamaður. Ef ég vinn hann er aldrei að vita nema ég fái mitt færi á titlinum,“ segir Maia ákveðinn en hversu sannfærður er hann um sigur?

„Við bardagamenn erum alltaf bjartsýnir og ég efast ekkert um að Gunnar sé líka mjög bjartsýnn. Ég er líklega búinn að taka bestu æfingabúðir lífs míns og á laugardag stíg ég í búrið og reyni að sýna allt það sem ég kann.“

Sjá einnig:Gunnar Nelson: Gæði sigranna skiptir meira máli en fjöldi þeirra

Maia talar vel um Gunnar og ber augljóslega mikla virðingu fyrir honum. Þetta verður sérstakur bardagi því Maia verður sá fyrsti sem vill fara í gólfið með Gunnari.

„Gunnar er mjög hæfileikaríkur. Er með gott box, gott jiu jitsu og glímu. Ég þarf að passa mig á honum og verð að halda einbeitingu allan tímann. Ég má ekki gera mistök heldur verð ég að láta hann gera mistök.“


Tengdar fréttir

Jón Viðar: Sigur gerir Gunna heimsfrægan

Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis og góðvinur Gunnars Nelson, fylgir sínum manni hvert sem er og er að sjálfsögðu mættur til Las Vegas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×