Sport

Conor tók fulla æfingu með húfu á höfðinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor á æfingunni í gær. Írarnir sem mættir eru hvöttu hann vel áfram.
Conor á æfingunni í gær. Írarnir sem mættir eru hvöttu hann vel áfram. vísir/getty
Fyrir öll UFC-kvöld þurfa þeir sem berjast í stærstu bardögunum að mæta á opna æfingu. Æfa fyrir framan fjölmiðla og áhorfendur.

Þetta er venjulega hin mesta kvöð fyrir marga bardagakappa en þeir fjórir sem æfðu í gær voru nokkuð jákvæðir og tóku þokkalega á því.

Enginn þó meira en Írinn Conor McGregor. Síðasta sumar tók hann 50 mínútna æfingu og sinnti svo aðdáendum sínum í rúman hálftíma.

Hann tók ekki eins langa æfingu í gær en þó hina lengstu. Tók virkilega á því og var í fullum herklæðum allan tímann og þess utan með húfu.

Ástæðan er sú að hann er auðvitað í niðurskurði og vigtunin fer fram í kvöld.

Conor er stærri en flestir í hans vigt og þarf iðulega að taka fleiri kíló af sér en hinir og er það mikil og erfið vinna.

Svo mikil að mönnum leist vart á hann er hann steig á vigtina síðasta sumar. Hann leit alls ekki vel út. Heildaræfingar og niðurskurður hefur gengið mun betur núna og hann ætti því að líta betur út á vigtinni að þessu sinni.

Bardagakvöldið stóra með Gunnari Nelson og Conor McGregor verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Hægt er að kaupa áskrift á 365.is. Íþróttadeild 365 er í Las Vegas og flytur ykkur nýjustu tíðindi. Fylgstu með á Facebook, Twitter og Snapchat: sport365.

MMA

Tengdar fréttir

Jón Viðar: Sigur gerir Gunna heimsfrægan

Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis og góðvinur Gunnars Nelson, fylgir sínum manni hvert sem er og er að sjálfsögðu mættur til Las Vegas.

Gunnar Nelson mætir goðsögn í UFC-heiminum

Brasilíumaðurinn Damian Maia er meira en tilbúinn fyrir bardagann gegn Gunnari Nelson annað kvöld. Þó að hann sé aðeins kominn á aldur segist hann eiga nóg eftir og stefnir á heimsmeistaratitil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×