Aron nær líklega ekki að spila meira á árinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. desember 2015 16:56 Það verður bið á því að Aron spili með Werder Bremen á nýjan leik. Vísir/Getty
Aron Jóhannsson mun líklega ekki spila meira á árinu ef marka má orð Rouwen Schroder, yfirmanns íþróttamála hjá þýska liðinu Werder Bremen. Aron gekkst fyrir mánuði síðan undir aðgerð á mjöðm og byrjaði nú á sunnudaginn að æfa einn síns liðs á nýjan leik. Eftir aðgerðina sögðu forráðamenn Bremen að það væri tvísýnt um að Aron myndi spila meira á árinu. „Það færir manni smá von,“ sagði Schroder um stöðu Arons og að hann væri byrjaður að æfa á nýjan leik. „En það þýðir samt ekki að hann muni brátt æfa með liðinu,“ sagði hann og bætti við að liðið myndi frekar vilja endurheimta Aron þegar hann er heill heilsu, fremur en að ýta honum of snemma af stað.Sjá einnig: Aron fór undir hnífinn í dag Aron gekk í raðir Bremen í sumar og skoraði tvö mörk í sex leikjum áður en hann meiddist. Hann reyndi fyrst að ná bata með sjúkraþjálfun en þegar það bar ekki nægilega góðan árangur var ákveðið að hann myndi leggjast undir hnífinn. Werder Bremen er í fimmtánda og fjórða neðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með þrettán stig. Liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð og mætir Stuttgart, næstneðsta liði deildarinnar, á laugardaginn. Þýska úrvalsdeildin fer í vetrarfrí skömmu fyrir jól og hefst svo aftur 24. janúar.
Fótbolti Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Sjá meira