Verkin tengd saman með farvegum vatns 12. nóvember 2015 12:30 Sýning á verkum systranna þriggja verður opnuð í dag í Galleríi Gróttu. Mynd/Úr einkasafni Mynd/Einkasafn
Í dag verður sýningin Farvegir vatns opnuð í Galleríi Gróttu á Seltjarnarnesi. Á sýningunni má sjá verk systranna Ingileifar, Áslaugar og Sigrúnar Thorlacius og er þetta fyrsta samsýningin á verkum systranna þriggja. Þráðurinn í gegnum sýninguna er vatnið, áhrif þess, nýting og kraftur sem þær vinna með á ólíkan máta. „Við ákváðum að finna einhvern þráð og sáum fljótlega hvernig við gátum tengt okkur saman með farvegum vatnsins,“ segir Áslaug en verkin sem hún sýnir eru blýantsteikningar og röð blekmynda af náttúrufyrirbrigðum þar sem farvegir vatns eru í aðalhlutverki. Verkin fjalla um vestfirskar fjallahvilftir, gil og klettabelti sem vatn og aðrir náttúrukraftar hafa mótað. „Ingileif, elsta systir okkar, notaði mikið vatnsliti í sínum verkum og í síðustu verkum sínum lét hún vatnslitina eiginlega stjórna útkomunni. Lét litinn flæða og þorna í pollum svo úr varð mynd. Stundum einn lit og stundum fleiri,“ segir Áslaug um verk elstu systur sinnar en Ingileif hélt fimm einkasýningar á ferli sínum og tók þátt í átta samsýningum á Íslandi og í Svíþjóð en hún lést árið 2010. Lýsa má verkum hennar á sýningunni sem einfaldri rannsókn á ferðalagi vatnsins um pappírinn. Sigrún er vöruhönnuður að mennt og eru verk hennar hugvekja um votlendið en þetta er hennar fyrsta opinbera sýning eftir útskrift úr Listaháskóla Íslands síðastliðið vor. Sýningin verður opnuð klukkan 17.00 í Galleríi Gróttu sem er á annarri hæð á Eiðistorgi. Sýningin verður opin til 4. desember.
Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Anthony Head er látinn Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Lífið samstarf Fleiri fréttir Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Sjá meira