Á von á dóttur og syngur popptónlist í fyrsta sinn Gunnar Leó Pálsson skrifar 14. nóvember 2015 10:00 Geir Ólafsson og Adriana Patricia Sanches Krieger eiga von á stúlkubarni í janúar og hlakka til að takast á við foreldrahlutverkið. vísir/pjetur „
Ég man ekki til þess að hafa verið að syngja popp- og rokkmúsík en ég hef gaman af allri tegund tónlistar,“ segir Geir Ólafs, sem er að senda frá sér nýja plötu á dögunum. Hún er jafnframt fjórða sólóplatan hans og sú fyrsta í popp- og rokkstíl enda Geir líklega þekktastur fyrir að syngja djass. Platan sem ber titilinn Just A Simple Man inniheldur lög eftir Jóhann G. Jóhannsson heitinn og þá er eitt lagið eftir bróðir Jóhanns, Guðmund Reynisson. „Ég hef verið að vinna að plötunni í rúm tvö ár og það var gífurlega mikill heiður að fá efni frá Jóa og er ég ákaflega þakklátur fyrir það,“ segir Geir. Hann segist hafa kynnst Jóhanni vel við vinnslu plötunnar I´m talking about you sem Geir sendi frá sér árið 2012. „Það er mikill heiður að hafa kynnst honum og algjörlega frábært að vera vinur hans.“ Platan er tekin upp í Los Angeles og á Íslandi og leika miklar kanónur inn á plötuna, má þar nefna trommuleikarana Dave Weckl og Bernie Dresel sem eru báðar ákaflega virtir í tónlistarheiminum, píanóleikarann Don Randi, saxófónleikarann Brandon Fields, píanó- og hljómborðsleikarann Þóri Baldursson og gítarleikarann Vilhjálm Guðjónsson svo nokkrir séu nefndir. „Það er auðvitað alveg frábært að vinna með svona frábærum hljóðfæraleikurum. Ég er gríðarlega ánægður og þakklátur.“ Verkefni Geirs eru þó fleiri en að sinna nýju plötunni því eiginkona hans Adriana Patricia Sanches Krieger gengur með dóttur þeirra sem á að koma í heiminn í byrjun janúar. „Við ætlum að eiga barnið á Íslandi. Mitt aðalverkefni er að láta elskulegu eiginkonu minni líða vel. Ég á henni mikið að þakka, án hennar hefði ég aldrei geta gert þessa plötu,“ segir Geir alsæll og fullur tilhlökkunar að takast á við föðurhlutverkið. Ekki er komin dagsetning á útgáfutónleikana en Geir hefur þó í nógu að snúast í spilamennsku á næstunni því hann kemur fram á jólahlaðborðum og þá hefur hann og sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson leitt saman hesta sína í tónleikahaldi að undanförnu. Nýja platan kemur út á þriðjudaginn kemur.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira