Tróð eitt þúsund tannstönglum í skeggið á sér Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. nóvember 2015 14:53 Herrar mínir og frúr; þúsund tannstönglar í skegginu, takk fyrir túkall. skjáskot
Frank Arthur Blöndahl Cassata réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þegar hann tók upp á því að stinga 1000 tannstönglum í skeggið á sér á dögunum. Myndband af uppátæki Franks hefur vakið töluverða athygli allt frá því að hann birti það á föstudaginn. Nú hafa á annað þúsund manns barið myndbandið augum, sem sjá má hér að neðan, og því fátt annað í stöðunni fyrir Vísi en að spyrja Frank hvað hafi eiginlega vakað fyrir honum. Spurður út í tildrög uppátækisins segir hann ástæðuna vera einfalda. Hann hafi prófað þetta áður en þá með minna skegg. Því hafi verið fátt annað í stöðunni en að sjá hvort hann gæti komið enn fleiri tannstönglum í skeggið nú þegar hann er orðinn loðnari í framan. Frank segist sannfærður um að fyrrnefndir þúsund tannstönglar geri hann að réttmætum Íslandsmeistara í tannstönglaskeggtroði. Hann segist þó hvergi nærri hættur og ætlar Frank sér því að reyna aftur þegar skeggið er orðið enn síðara. Frank segir það þó vera töluvert vandaverk að koma svo mörgum tannstönglum fyrir á jafn litlu svæði. Það hafi tekið hann rúman klukkutíma og þá slasaði hann sig í undirbúningnum. „Já, ég stakk mig tvisvar í augað með tannstöngli,“ segir Frank. Að sögn Íslandsmeistarans er kærastan sem veldur myndavélinni skilningsrík – að minnsta kosti upp að ákveðnu marki. „Hún horfði reyndar nokkrum sinnum á mig meðan ég var að gera þetta og spurði hvað í andskotanum ég væri að gera, hvað væri eiginlega að mér og fleiri slíkar athugasemdir,“ segir Frank. Títtnefnt myndband af metinu má sjá hér að neðan.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira