Að fá sér hálf-nýjan bíl Svanur Sigurbjörnsson skrifar 4. nóvember 2015 07:00 Ég hef ákveðið að fá mér nýjan bíl því að 2007 módelið er farið að bila svo oft að það svarar ekki kostnaði að eiga hann og tímatapið sem ég verð fyrir vegna viðgerðanna er ómælt. Þar sem ég hef ekki efni á að fá mér alveg nýjan bíl ætla ég að fá mér hálfnýjan bíl þannig að framhlutinn verði nýr og lúkki vel út en afturhlutinn verði sá gamli áfram. Vinur minn hefur sagt mér að ég sé galinn að láta mér detta þetta í hug en fyrir utan minni fjárútlát get ég ekki hugsað mér að yfirgefa afturhlutann enda klassískt útlit 2007 árgangsins. Þetta er nokkurn veginn það sem stefnt er að með því að reisa hálfnýjan Landspítala við Hringbraut. Hann myndi lúkka vel út að framan en drattast með meirihluta rúma sinna að aftan í úreltum húsakynnum. Fæðingardeildin yrði áfram í sínu gamla húsnæði í borholufjarlægð frá nýjum skurðdeildum. Öllu yrði klambrað saman með undirgöngum og ranghölum. Áfram þyrfti þungt viðhald húsnæðis og áfram yrði skortur á einangrunarrýmum.Engan afslátt Nýr spítali á ekki að vera hálfnýr því að það er ekki ákvörðun sem er tekin til næstu 50-70 ára eins og hún þarf að vera sé tekin full ábyrgð á framtakinu. Fyrir slíka ákvörðun þarf að hugsa stórtækt og gefa engan afslátt af því að byrja út frá bestu forsendum en ekki þeim hálf-bestu. Það er enginn sparnaður í því að spara 1/3 af verði nýs spítala með hálf-lausn og súpa seyðið af dýru viðhaldi, óhagræði, umferðarteppum, skertum gæðum starfseminnar, áframhaldandi óánægju hluta starfsfólks og rýrum stækkunarmöguleikum. Miðbærinn er nú þegar að springa út af hótelum og uppbygging HÍ mun halda áfram og þurfa sitt pláss. Þó að LSH sé háskólasjúkrahús þarf spítalavinna ekki að fara fram í göngufæri við bóknám og kennslu verðandi heilbrigðisstétta. Stærstu hagsmunamálin eru að það verði byggður alveg nýr spítali og aðgengi akandi umferðar sé eins og best verður á kosið. Afsláttur af þessum kröfum þýðir að hálf-nýr spítali verður úreltur á 20 árum og verður í raun aldrei boðlegur nema að hluta. Raunverulegur sparnaður og þjóðhagkvæmni fæst með algerri endurnýjun og endurhugsun Landspítala háskólasjúkrahúss á besta stað. Það er tími fyrir nýtt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar