Tólf ára en hefur tvisvar bjargað lífi móður sinnar 6. nóvember 2015 15:30
Þrátt fyrir að vera aðeins 12 ára hefur Ingvar Óli Sigurðsson afrekað að bjarga lífi móður sinnar og það ekki bara einu sinni heldur tvisvar. Í bæði skiptin hringdi hann í Neyðarlínuna þegar móðir hans, Hrefna Samúelsdóttir, veiktist lífshættulega á heimili fjölskyldunnar á Hvammstanga. Auk þess að sjá um samskipti við Neyðarlínuna þurfti hann að hugsa um yngri bræður sína, en Ingvar er elstur þriggja bræðra. „Ég man í rauninni lítið frá þessum degi,“ segir Hrefna móðir Ingvars í fimmta þætti af Neyðarlínunni um það þegar hún veiktist í fyrra skiptið. Hana svimaði og leið undarlega, en síðar átti eftir að koma í ljós að hún var með heilablóðfall.Mundi eftir vinnusíma pabba síns „Ég spurði bara hvað ég ætti að gera og hún sagði mér að hringja í Neyðarlínuna,“ segir Ingvar Óli sem síðar var útnefndur maður ársins á Norðurlandi vestra fyrir frammistöðu sína. Í seinna skiptið var Hrefna nýkomin heim úr margra mánaða langri endurhæfingu eftir heilablóðfallið, en þá fékk hún flogakast á heimili sínu. Aftur kom Ingvar til bjargar. „Ég var bara inni í herbergi þegar ég heyrði lætin. Heimasíminn var týndur en svo mundi ég eftir vinnusímanum hans pabba og hringdi úr honum.“Ítarlega verður fjallað um hetjudáð Ingvars Óla í fimmta þætti af Neyðarlínunni sem er á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudag kl. 20.05. Meðfylgjandi er stutt brot úr þættinum.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira