Aron ein stærsta ástæða þess að Veszprém er besta liðið í Evrópu Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. október 2015 12:00 Aron Pálmarsson er einn besti leikmaður heims. vísir/epa
Aron Pálmarsson og félagar hans í MVM Veszprém frá Ungverjalandi eru besta liðið í Meistaradeildinni í handbolta að mati fimm evrópskra handboltasérfræðinga. Sex umferðum af fjórtán er lokið í A og B riðlum Meistaradeildarinnar þar sem bestu liðin spila, en Veszprém er í öðru sæti A-riðils eftir að tapa sínum fyrsta leik gegn Paris Saint-Germain um síðustu helgi.Sjá einnig:Aron sýndi að hann er einn sá besti | Sjáðu mörkin og stoðsendingarnar Á heimasíðu Meistaradeildarinnar er birtur samanlagður styrkleikalisti sem byggður er á mati sérfræðinganna Tom O’Brannagain frá Írlandi, Peter Bruun frá Danmörku, Nemanja Savic frá Serbíu, Kevin Domas frá Fraklandi og Björn Pazen frá Þýskalandi. „Ungverska liðið var fyrst til að vinna í Zagreb og er búið að leggja bæði Flensburg og Kiel að velli. Tapið gegn PSG var að stærstum hluta meiðsla liðsins að kenna en Lazlo Lagy, Christian Zeitz og Peter Gulyas voru allir meiddir,“ segir í umsögn um liðið. Ein stærsta ástæða þess að Veszprém-liðið er svona gott er koma Arons Pálmarssonar sem skipti yfir frá Kiel í sumar. „Veszprém lítur svo frábærlega út vegna fjölbreytileikans í sóknarleiknum,“ segja sérfræðingarnir og benda sérstaklega á Aron Pálmarsson og Króatann Ivan Sliskovic. Makedónska ofurliðið HC Vardar er talið næst besta liðið á þessu stigi keppninnar og Róbert Gunnarsson og félagar í PSG eru í þriðja sæti. Sænska liðið Kristianstad hefur staðið sig frábærlega og er í fjórða sæti listans á þessu stigi keppninnar. Svíarnir eru þar á undan, Kiel, HC Zagreb, Flensburg, Löwen og Evrópumeisturum Barcelona.Tíu bestu liðin að mati séfræðinganna: 1. Veszprém, Ungverjalandi 2. HC Vardar, Makedóníu 3. Paris Saint-Germain, Frakklandi 4. IFK Kristianstad, Svíþjóð 5. Kiel, Þýskalandi 6. HC Zagreb, Króatíu 7. Flensburg, Þýskalandi 8. Naturhouse La Rioja, Spáni 9. Rhein-Neckar Löwen, Þýskalandi 10. Barcelona, Spáni
Handbolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira