Allt til að halda krökkunum á mottunni Jakob Bjarnar skrifar 31. október 2015 11:25 „Hræða blessuð börnin og halda þeim á mottunni,“ segir Hafrún Anna hlæjandi.
Hafrún Anna Sigurbjörnsdóttir viðskiptastjóri gerði sér lítið fyrir og skar út grasker eins og hún hefði aldrei gert annað. Hún birti mynd af graskerinu Facebook og hefur það vakið verulega athygli og hrifningu meðal vina hennar þar. Fyrir utan það hversu vel tókst til þá er eftirtektarvert að Hafrún Anna hefur aldrei fengist við útskurð af neinu tagi; ekki að skera í grasker né nokkuð annað, sé því að skipta. „Ég var svona rúma tvo tíma að skera þetta út,“ segir Hafrún Anna, sem getur þulið upp ýmsar gráður og titla til að státa af svo sem BA í hagfræði og félagsvísindum frá Bifröst og Markaðs- og alþjóðaviðskipti frá HÍ. „En, nei, ég hef aldrei komið nálægt neinu slíku sem kallast má útskurður. Þetta er fyrsta grasker sem ég sker út.“En, hvað kom til að hún fór að fást við þetta núna? „Ég sá þátt eða auglýsingu á netinu þar sem verið var að skera út í þrívídd og fannst það spennandi. Svo á ég börn og vil gleðja þau allan daginn. Ætli það spili ekki inní. Hræða blessuð börnin og halda þeim á mottunni,“ segir Hafrún Anna hlæjandi. En hún á þrjá syni, þar af tvo mjög unga. Og þeim þykir mikið til koma – að sjálfsögðu. Úti í Bandaríkjunum, þar sem Halloween-tíð, eða Hrekkjavaka, er haldin hátíðleg er rík hefð fyrir því að skera út grasker og þá helst þannig að þau séu sem skelfilegust. Ekki hefur hins vegar farið mikið fyrir slíku á Íslandi, en það virðist vera að breytast. Hafrún Anna segir að hún og fjölskyldan taki þátt í þeim hátíðarhöldum sem fylgja, að hætti Bandaríkjamanna. „Vinafólk mitt hefur komið upp hefð, sem er að halda mikið hrekkjavökupartí og við erum að fara þangað á dag. Í Garðabæinn. Þar er metnaðarfull móðir sem hefur tekið nokkrar vikur í að skreyta.“
Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Fleiri fréttir Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Sjá meira