Ljónin með fullt hús stiga | Bergischer í vandræðum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. október 2015 19:48 Alexander skoraði fjögur mörk í kvöld. vísir/epa
Alexander Petersson skoraði fjögur mörk þegar Rhein-Neckar Löwen vann eins marks sigur, 28-29, á Hamburg á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ljónin hafa unnið alla 11 leiki sína í deildinni og stefna hraðbyri að þýska meistaratitlinum. Leikurinn í kvöld var lengst af hnífjafn en Löwen var jafnan fyrri til að skora í seinni hálfleik. Þegar rúmar fjórar mínútur voru til leiksloka var munurinn þrjú mörk, 24-27, en Hamburg gafst ekki upp og Adrian Pfahl jafnaði metin í 28-28 þegar 18 sekúndur voru eftir. Nicolaj Jacobsen, þjálfari Löwen, tók í kjölfarið leikhlé og að því loknu skoraði Andy Schmid sigurmarkið þegar þrjár sekúndur lifðu leiks. Schmid og Uwe Gensheimer voru markahæstir í liði Löwen með sex mörk hvor. Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Bergischer, lið þeirra Björgvins Páls Gústavssonar og Arnórs Þórs Gunnarssonar, er í miklum vandræðum en liðið tapaði fimmta leiknum í röð þegar það sótti Melsungen heim í kvöld. Lokatölur 29-22, Melsungen í vil. Arnór var markahæstur í liði Bergischer ásamt Maximilian Hermann en þeir skoruðu báðir sex mörk. Björgvin varði 10 skot í markinu. Í B-deildinni vann Íslendingaliðið Aue fjögurra marka sigur, 29-25, á Springe á heimavelli. Sigtryggur Rúnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Aue í kvöld og Bjarki Már Gunnarsson eitt. Sveinbjörn Pétursson ver fram liðsins en Árni Þór Sigtryggsson var ekki í leikmannahópi þess í kvöld. Rúnar Sigtryggsson er þjálfari Aue. Annað Íslendingalið, Emsdetten, lá fyrir 1893 Neuhausen á útivelli, 36-32. Oddur Gretarsson fór hamförum í liði Emsdetten og skoraði 13 mörk. Anton Rúnarsson og Ernie Hrafn Arnarson skoruðu tvö mörk hvor.
Handbolti Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fleiri fréttir Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Sjá meira