Tuttugu kíló fóru með sykrinum Elín Albertsdóttir skrifar 10. október 2015 11:00 Nanna gaf út bók nýlega sem nefnist Sætmeti án sykurs og sætuefna, þar sem hún gefur sykurlausar uppskriftir. Vísir/Anton
Matgæðingurinn Nanna Rögnvaldardóttir hefur verið í sykurbindindi í ellefu mánuði. Á þeim tíma hefur hún losað sig við 20 kíló. Nanna finnur mikinn mun á líðan sinni, hún er léttari á sér og laus við bjúg. Meistaramánuður stendur yfir í október þótt ekki hafi farið mikið fyrir honum að þessu sinni. Væntanlega eru þó margir sem hafa það að markmiði að losa sig við sykurfíknina. Nanna hefur náð góðum árangri í sykurleysinu. „Ég var búin að vita það í þó nokkurn tíma að ég þyrfti að endurskoða mataræðið, sérstaklega þar sem ég var komin með forstigseinkenni sykursýki. Blóðsykurinn var farinn að mælast allt of hár. Ég ákvað að hætta að borða sykur og athuga hvort það hefði áhrif. Læknirinn vildi að ég færi á lyf en ég var ekki tilbúin til þess, að minnsta kosti vildi ég prófa þetta fyrst,“ útskýrir Nanna.Aldrei neinn nammigrís„Það ótrúlega gerðist að þetta hafði áhrif og blóðsykurinn varð aftur eðlilegur. Ég finn ekkert lengur fyrir þeim einkennum sem ég var farin að finna fyrir, eins og skyndilegum hósta, mikilli svengd og sveiflum á blóðsykrinum. Ýmislegt fleira var farið að angra mig sem nú er horfið. Ég er léttari á mér og liðugri, enda hef ég misst tuttugu kíló,“ segir Nanna og bætir við að ekki megi misskilja það þannig að hún hafi borðað svona mikið nammi. Það hafi hún aldrei gert. „Matarlystin hefur breyst hjá mér frá því ég ákvað að sleppa sykrinum. Ég verð sjaldnar og minna svöng en áður. Svo er ég farin að hugsa öðruvísi um það sem ég læt ofan í mig.“ Nanna segir að hún hafi verið illa haldin af bjúg í langan tíma. „Ég hef átt í stríði við bjúg á fótunum í mörg ár. Hann er horfinn. Ég átti erfitt með að fá passlega skó á mig, það er ekki lengur vandamál þar sem ég nota núna tveimur númerið minna en ég gerði. Ég passa ekki lengur í gömlu skóna svo ég hef þurft að endurnýja fataskápinn að öllu leyti,“ segir hún.Nanna hafði lengi verið í stríði við mikinn bjúg á fótunum. Nú er hann horfinn og hún notar tveimur númerum minni skó.Vísir/AntonBakað án sykurs Nanna er þekktur matgæðingur. Hún hefur gefið út fjölda matreiðslubóka, verið matarblaðamaður hjá tímaritum og ritstýrt fjölda þýddra matreiðslubóka. Hún starfar hjá Forlaginu og hefur gefið út tvær bækur á þessu ári, aðra með sykurlausu mataræði. Það hlýtur að vera erfitt fyrir slíkan ástríðukokk að neita sér um sætmeti. Hún segist þó ekki finna fyrir því. „Mér finnst þetta ekki erfitt, ég borða flest allan mat. Hugsa bara meira um hvað ég borða og hversu mikið. Ég borða brauð, helst það sem ég baka sjálf, og vel frekar heilhveiti en hveiti. Samt er ég ekkert að sneiða hjá hveiti heldur finnst mér hitt betra. Ég sleppi hins vegar öllum sykri og sætuefnum en borða ávaxtasykur og nota hann gjarnan í bakstur. Oft eru ávextir á borðum hér í vinnunni og ef þeir verða of þroskaðir þá baka ég úr þeim. Það kom mér reyndar mjög á óvart hversu auðvelt þetta hefur verið. Ég hefði haldið að þetta væri erfitt. Ég hélt að ég væri sykurfíkill og háð sætindum. Það reyndist ekki vera. Vel getur verið að sykurleysi sé erfitt fyrir suma en þetta hefur reynst létt fyrir mig,“ segir hún. „Þegar ég fer í kökuveislu sneiði ég hjá öllu sætu og vel frekar brauðrétti eða annað ósætt. Það er ekkert vandamál fyrir mig að sleppa kökum, sælgæti, djúsum og gosdrykkjum. Ég les innihaldslýsingar á öllum umbúðum og sleppi því sem sykur er í. Ég kaupi til dæmis alltaf ósprautaðar kjúklingabringur en það hef ég alltaf gert hvort eð er,“ segir hún og bætir við að sykur leynist í ótrúlega mörgum matvælum þegar að er gáð. „Ég las um daginn að í breskum stórmörkuðum er sykur í 80-85% matvæla. Sykur er líka í mörgum mjólkurvörum en ég kaupi alltaf hreint skyr eða hreina jógúrt. Ég borða hreina jógúrt á hverjum morgni með ávöxtum og sykurlausu múslí sem ég bý sjálf til. Það er í raun margt sem hægt er að útbúa án sykurs. Ég baka til dæmis oft án þess að nota sykur. Stundum baka ég með sykri handa öðrum, til dæmis barnabörnunum en ég reyni þá að minnka skammtinn.“Jólaskap um helgina Stundum er sagt að sykur sé eitur, jafnvel fíkniefni. Nanna er ekki sammála því. „Mér finnst fáránlegt að líkja sykri við heróín. Það er móðgun við alvöru fíkla. Eins og allt annað er sykur óhollur í óhófi. Ég myndi mæla með að fólk prófaði að taka út sykurinn, sérstaklega ef fólk finnur fyrir einkennum eins og ég gerði. Fyrir mig hefur þetta líka reynst góð leið til að léttast.“ Þegar Nanna er spurð hvað sé á döfinni um helgina hlær hún og segir að hún muni líklegast vinna talsvert með sykur um helgina. „Jólin eru framundan. Ég útbý matarþátt fyrir tímaritið Man og er að undirbúa uppskrift að jólamat. Það verður bæði sætt og sykurlaust. Ég ætla því að vera í jólaskapi um helgina,“ segir Nanna en hún er vön því að jólin komi snemma hjá sér. „Þegar maður vinnur í bókaútgáfu þá eru jólabækurnar yfirleitt komnar í prentsmiðju um þetta leyti.“ Nanna hefur gaman af því að ferðast. Hún fer alltaf á eigin vegum og kýs að ferðast ein. „Ég fór til Madeira um síðustu jól og er núna nýkomin frá Porto í Portúgal. Ég hef tekið á leigu íbúðir og verið mjög heppin,“ segir Nanna sem segist annars vera mjög heimakær kona. „Ég er grúskari, les gömul blöð á timarit.is og hef yndi af glæpasögum.“ Nanna gefur hér uppskrift úr bók sinni, Sætmeti án sykurs og sætuefna.Kúrbíts-súkkulaðibrauð með sveskjum.Kúrbíts-súkkulaðibrauð með sveskjum Vissulega er ein leið til að auka grænmetisneyslu sú að nota grænmetið í bakstri en gulrótarkökur, kúrbítsbrauð og þess háttar bakkelsi er oft stútfullt af sykri og þá fer nú hollustan fyrir lítið. Í þessu kúrbítsbrauði notaði ég hins vegar sveskjur og appelsínusafa til að sæta, það ætti að vera ögn hollara. 350 g kúrbítur 200 g steinlausar sveskjur, mjúkar 125 g smjör, lint 3 egg 100 ml nýkreistur appelsínusafi 1?1/2 tsk. vanilluessens rifinn börkur af 1 sítrónu 250 g heilhveiti 40 g kakóduft 2?1/2 tsk. lyftiduft 1 tsk matarsódi 1/2 tsk. kanill 1/2 tsk. salt Hitaðu ofninn í 165°C. Rífðu kúrbítinn á grófu rifjárni og pressaðu svo eins mikinn safa úr honum og þú getur, annaðhvort með því að setja hann í t.d. kartöflupressu eða setja hann á viskastykki og vinda það vel. Maukaðu sveskjurnar í matvinnsluvél og hrærðu smjöri og eggjum saman við og síðan appelsínusafa, vanilluessens og sítrónuberki. Blandaðu heilhveiti, kakódufti, lyftidufti, matarsóda, kanil og salti saman og hrærðu það saman við deigið. Blandaðu að lokum kúrbítnum saman við með sleikju. Settu deigið í pappírsklætt jólakökuform og bakaðu brauðið á neðstu rim í ofni í um 50 mínútur, eða þar til prjónn sem stungið er í það kemur hreinn út. Láttu það kólna dálítið í forminu en settu það svo á grind og láttu það kólna alveg.
Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Calvin Harris orðinn faðir Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fleiri fréttir Calvin Harris orðinn faðir Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Sjá meira