Öllu því besta er tjaldað til 19. október 2015 11:35 „Það er öllu til tjaldað og keppnisandinn er mikill, ekkert ósvipað og í Eurovision,“ segir Bjarney Lúðvíksdóttir sem stýrir Geðveikum jólum. MYND/GVA
Átakið Geðveik jól hóf göngu sína árið 2011 og hefur frá upphafi sett skemmtilegan svip á jólaundirbúning landsmanna. Þar keppa fyrirtæki sín á milli um „geðveikasta jólalagið“ sem ýmist er samið af starfsmönnum sjálfum eða saminn er nýr texti við eldra útgefið lag. Um leið er markmið átkasins að næra geðheilsu starfsmanna, hressa upp á móralinn og að leyfa starfsmönnum að láta ljós sitt skína um leið og þeir láta gott af sér leiða. Upphafsmaður Geðveikra jóla er Bjarney Lúðvíksdóttir sem jafnframt hefur stýrt verkefninu frá upphafi. Þá sat hún í stjórn Geðhjálpar og segist hafa viljað finna nýja og skemmtilega leið til þess að styðja við félagið. „Ég nýtti reynslu mína sem framleiðandi til þess að hanna verkefnið sem fékk nafnið Geðveik jól. Orðið „geðveik“ til að minna okkur á mikilvægi góðrar geðheilsu og „jól” vegna þess að desember er sá mánuður sem fólk fer oft á yfirsnúning og gleymir að hlúa að geðheilsunni.“ Keppnin sjálf gengur út að safna áheitum en hvert fyrirtæki safnar til stuðnings góðu málefni. Fyrirtækið sem safnar hæstu upphæðinni vinnur sér inn þrjú stig en sérstök dómnefnd, skipuð tónlistarfólki með ólíkan bakgrunn, gefur einnig. „Lögin mega ekki vera lengur en 3 mínútur og starfsmenn eiga að vera í aðalhlutverki þótt aðstoð fjölskyldumeðlima, vina og viðskiptavina sé leyfð.“Hæfileikar eru víðaSjónvarpsþættir um Geðveik jól hafa verið sýndir á RÚV undanfarin ár og er þátturinn einn sá vinsælasti á sjónvarpsstöðinni í desembermánuði. „Um þessar mundir hef ég í samstarfi við Sagafilm Nordic unnið að því að koma verkefninu á dagskrá hjá Norðurlandaþjóðunum. Það verður spennandi að sjá hvort þær komi til með að halda Geðveik jól eins og við í náinni framtíð.“ Framleiðsla jólalaganna og myndbandanna hefst í nóvember og segir Bjarney magnað að fylgjast með metnaði þátttakenda undanfarin ár. „Það er öllu til tjaldað og keppnisandinn er mikill, ekkert ósvipað og í Eurovision. Það ætla allir að vinna! Það hefur sýnt sig að tónlistahæfileikar leynast alls staðar, á færiböndum og í fundarherbergjum. Geðveik jól hefur verið frábært vettvangur fyrir óslípaða tónlistasnillinga til að láta ljós sitt skína.“ Hún segir löngu ljóst að verkefnið hafi jákvæð áhrif á vinnustaði og fólkið sem vinnur þar. „Þessi keppni er líka frábær leið til þess að kynna fyrirtækið, rekstur þess og ímynd í gegnum söng , gleði og mannauð.“ Áætlað er að fyrsti sjónvarpsþáttur um Geðveik Jól 2015 fari í loftið 3. desember og verða þá öll lögin frumsýnd og fyrirtækin kynnt til leiks. Þátttakendur í ár eru Virtus, Bestseller, Toyota, Hamborgarabúllan, Löður, LS Retail, DoHop og Kjarnafæði. „Átta geðveik fyrirtæki sem eru nú þegar byrjuð að undirbúa, semja og útsetja lögin sín.“Hægt er að fylgjast með framvindu átaksins inn á facebook.com/www.gedveikjol.is.
Mest lesið Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Lífið samstarf Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Sjá meira