Menntun réttur allra en ekki fárra útvaldra Þórður Hjaltested og Aðalheiður Steingrímsdóttir skrifar 5. október 2015 00:00 Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um heim allan 5. október ár hvert. Til dagsins var stofnað að frumkvæði UNESCO og Alþjóðasamtaka kennara (Education International) árið 1994. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem kennarar inna af hendi á hverjum degi fyrir einstaklinga og samfélög og lykilhlutverki kennara í gæðamenntun komandi kynslóða. Um 30 milljón kennarar í 171 landi tilheyra Alþjóðasamtökum kennara. Á Alþjóðadegi kennara í ár munu Alþjóðasamtök kennara, alþjóðastofnanir og þjóðarleiðtogar koma saman til að vekja athygli á markmiðum sem Sameinuðu þjóðirnar hafa sett fyrir árið 2030 um sjálfbæra þróun og lykilhlutverk sem kennurum er ætlað til að þau nái fram að ganga. Við íslenskir kennarar erum stoltir af því að tilheyra öflugri heimshreyfingu kennara sem berst fyrir sjálfbæru samfélagi, friði og réttlæti. Hlutverk kennara hefur aldrei verið eins mikilvægt og nú í að byggja upp sjálfbært samfélag en stór liður í því er gæðamenntun fyrir alla, jöfn tækifæri til menntunar og vel menntaðir einstaklingar. Menntun er réttur allra en ekki fárra útvaldra. Kennarar gegna meginhlutverki í því að vinna að réttlátu samfélagi í öllum heiminum. Styðja þarf markvisst við kennara til að ná þessu markmiði. Sífellt fleiri gera sér grein fyrir því mikilvæga hlutverki sem kennarar hafa í menntun barna og þætti kennara í að gera ungu fólki kleift að verða virkir þátttakendur í samfélaginu. Til að vinna að samfélagslegum jöfnuði þurfa kennarar að vera vel menntaðir, kennarastarfið þarf að vera metið að verðleikum og eftirsóknarvert fyrir ungt fólk. Kennarar þurfa að búa við góð starfsskilyrði og vinnuumhverfi. Kennarar eru sérfræðingar í námi og kennslu. Virða ber faglegt sjálfstæði kennara og treysta skal fagmennsku þeirra. Stjórnvöld þurfa að leggja sig fram við að eiga samstarf og samræður við kennara og samtök þeirra og móta stefnu og aðgerðir um mikilvægi kennarastarfsins fyrir samfélagið. Kennarar – til hamingju með daginn! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Sjá meira
Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um heim allan 5. október ár hvert. Til dagsins var stofnað að frumkvæði UNESCO og Alþjóðasamtaka kennara (Education International) árið 1994. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem kennarar inna af hendi á hverjum degi fyrir einstaklinga og samfélög og lykilhlutverki kennara í gæðamenntun komandi kynslóða. Um 30 milljón kennarar í 171 landi tilheyra Alþjóðasamtökum kennara. Á Alþjóðadegi kennara í ár munu Alþjóðasamtök kennara, alþjóðastofnanir og þjóðarleiðtogar koma saman til að vekja athygli á markmiðum sem Sameinuðu þjóðirnar hafa sett fyrir árið 2030 um sjálfbæra þróun og lykilhlutverk sem kennurum er ætlað til að þau nái fram að ganga. Við íslenskir kennarar erum stoltir af því að tilheyra öflugri heimshreyfingu kennara sem berst fyrir sjálfbæru samfélagi, friði og réttlæti. Hlutverk kennara hefur aldrei verið eins mikilvægt og nú í að byggja upp sjálfbært samfélag en stór liður í því er gæðamenntun fyrir alla, jöfn tækifæri til menntunar og vel menntaðir einstaklingar. Menntun er réttur allra en ekki fárra útvaldra. Kennarar gegna meginhlutverki í því að vinna að réttlátu samfélagi í öllum heiminum. Styðja þarf markvisst við kennara til að ná þessu markmiði. Sífellt fleiri gera sér grein fyrir því mikilvæga hlutverki sem kennarar hafa í menntun barna og þætti kennara í að gera ungu fólki kleift að verða virkir þátttakendur í samfélaginu. Til að vinna að samfélagslegum jöfnuði þurfa kennarar að vera vel menntaðir, kennarastarfið þarf að vera metið að verðleikum og eftirsóknarvert fyrir ungt fólk. Kennarar þurfa að búa við góð starfsskilyrði og vinnuumhverfi. Kennarar eru sérfræðingar í námi og kennslu. Virða ber faglegt sjálfstæði kennara og treysta skal fagmennsku þeirra. Stjórnvöld þurfa að leggja sig fram við að eiga samstarf og samræður við kennara og samtök þeirra og móta stefnu og aðgerðir um mikilvægi kennarastarfsins fyrir samfélagið. Kennarar – til hamingju með daginn!
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar