Leiðréttum mistökin strax Ólafur Bjarni Halldórsson skrifar 7. október 2015 07:00 Sameign okkar allra, Ríkisútvarpið, fer um þessar mundir í kynningarferð um landið þar sem til umræðu eru dagskráin, tæknibúnaður og fjármál stofnunarinnar. Auk þess gefst hlustendum kostur á að spyrja, gagnrýna eða hrósa. Þetta framtak ber að virða eins og annað sem vel er gert. Það kom fram á fyrsta fundinum hér á Ísafirði að starfsemi á landsbyggðinni yrði efld á ný eftir harkalegan niðurskurð og sömuleiðis að að innlend dagskrárgerð og fræðsluefni yrði aukið en dregið úr erlendu afþreyingarefni. Flestir geta tekið undir að þetta sé spor í rétta átt. Ríkisútvarpið hefur frá því að mælingar hófust notið meira trausts en aðrir fjölmiðlar og hlýtur það að teljast helsti styrkur þess.Varðveitum traustið Þetta hugtak traust er að öllu jöfnu eitthvað sem byggist upp á löngum tíma en er að sama skapi fallvalt. Til dæmis geta ákvarðanir sem tekst hvorki að skýra né rökstyðja dregið þetta lífsnauðsynlega traust niður fyrir hættumörk. Ríkisútvarpið okkar býr að góðum tæknibúnaði og húsnæði sem hvort tveggja er nauðsynlegt en fyrst og síðast er það fólkið sem þar starfar sem byggir upp og viðheldur þessari þjóðarstofnun. Ég tala um stofnun og vitna þar til orða mætrar útvarpskonu, Jórunnar Sigurðardóttur, sem fyrir tveimur árum var sæmd verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar. Hún sagði við það tækifæri að útvarpið mætti aldrei verða fyrirtæki heldur ávallt stofnun.Óútskýrðar uppsagnir Að sjálfsögðu hefur gengið á ýmsu í áttatíu og fimm ára sögu útvarpsins. Það var hægt að sýna því skilning að grípa þurfti til óvinsælla aðhaldsaðgerða í formi uppsagna fyrstu árin eftir fjármálahrun landsins þegar halli á ríkissjóði náði áður óþekktum stærðum. Nú er engu slíku til að dreifa og því verður að gera þær kröfur til stjórnenda að vandað sé til verka þegar fólk á í hlut. Sjaldan hefur farið af stað önnur eins bylgja andmæla eins og þegar tveimur þekktum og vinsælum útvarpskonum var gert að hætta fyrirvaralaust störfum við útvarpið. Hér er verið að tala um þær Hönnu G. Sigurðardóttur og Sigríði Stephensen sem báðar eiga langan og óumdeilanlega farsælan feril hjá útvarpinu þar sem Hanna hóf störf árið 1984 og Sigríður 1991. Báðar eru þekktar fyrir vönduð vinnubrögð og búa að yfirburða þekkingu í dagskrárgerð. Það er fólk eins og þessar tvær konur sem hafa á löngum ferli skapað útvarpinu okkar það traust sem aldrei verður að fullu metið. Það eru vægast sagt undarleg starfslok þegar fólki sem hefur stundað sína vinnu af alúð og samviskusemi er gert að hætta á deginum án þess að gefa fyrir því neina frambærilega ástæðu.xxxvísir/gvaÞegar það kemur fram opinberlega að þetta hafi komið „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ þá þarf enginn að efast um að hér er um að ræða einhliða ákvörðun þeirra sem fara með vald yfir starfsmannamálum Ríkisútvarpsins. Að þetta sé „liður í skipulags- og áherslubreytingum sem ætlað sé að styðja við ágætis þróun á Rás 1 á undanförnum vetri“ er í besta falli merkingarlaus klisja en þó, hvað þessar konur varðar, meira í ætt við öfugmæli eða hundalógík. Það hefur ekki tekist að skýra hvernig það „styður við ágætis þróun“ að ómetanlegri reynslu, vandvirkni og þekkingu sé umsvifalaust varpað á dyr. Að auki hlýtur það að orka tvímælis að þessi fyrirvaralausa uppsögn standist 12. grein laga um Ríkisútvarpið þar sem kveðið er á um að „málefnalegar ástæður þurfi ætíð að liggja að baki brottrekstri starfsmanna.“ Þessar málefnalegu ástæður hafa ekki komið fram og við sem skiljum ekki þennan gjörning getum því aðeins ályktað sem svo að líklega séu þær langsóttar.Mannleg mistök Okkur getur öllum orðið á en þá er yfirleitt sú leið fær að leiðrétta mistök. Eftirfarandi var haft eftir rómverska heimspekingnum Seneca fyrir tuttugu öldum: Errare humanum est, sed in errare perseverare diabolicum, sem má útleggja: Það er mannlegt að skjátlast en að halda fast við mistökin er djöfullegt. Það er því skorað á þá sem ábyrgðina bera að fylgja heilræðum Senecas og draga þessa vanhugsuðu ákvörðun að fullu til baka. Það dugar hvorki að gera þessa hæfu starfsmenn að óreglubundnum verktökum eða gera þeim að keppa um fyrri störf sín eftir einhverjum óskilgreindum markaðsreglum. Eins og þjóðþekktur maður sagði eitt sinn er honum fannst vegið í knérunn þeirra er ekki gætu komið vörnum við: „Svona gera menn ekki.“ Stjórnendur væru því menn að meiri að afturkalla ákvörðun sem hvorki nýtur stuðnings hlustenda né starfsmanna. Góður skipstjóri réttir stefnuna þegar skipið ber af leið.Verndum þjóðareignina Ríkisútvarpið og ekki síst elsti hluti þess, Rás 1, er menningarstofnun sem talar til þjóðarinnar dag og nótt allan ársins hring. Höldum vörð um þau gildi sem hún stendur fyrir. Þá mun hún sem áður sameina okkur á bæði erfiðum og góðum stundum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Sjá meira
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun