Löwen vann toppslaginn | Kiel í erfiðri stöðu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. október 2015 18:55 Alexander sækir að vörn Kiel. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen náði sex stiga forskoti á Kiel á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir fjögurra marka sigur, 24-20, í leik liðanna í Mannheim í kvöld. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hafa tapað þremur af fyrstu níu leikjum sínum í þýsku deildinni og eru komnir í erfiða stöðu enda er Löwen ekki líklegt til að tapa mörgum stigum miðað við spilamennsku liðsins það sem af er tímabili. Ljónin voru mun sterkari í fyrri hálfleik og leiddu með sex mörkum að honum loknum, 13-7. Löwen var með góða forystu framan af seinni hálfleik en í stöðunni 15-11 hleypti Kiel spennu í leikinn með því að skora þrjú mörk í röð. Nær komust þýsku meistararnir hins vegar ekki og heimamenn héldu þeim í hæfilegri fjarlægð það sem eftir lifði leiks. Lokatölur 24-20, Löwen í vil. Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Löwen en Uwe Gensheimer var markahæstur í liði Ljónanna með sjö mörk, þar af fimm af vítalínunni. Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Spánverjinn Joan Canellas var markahæstur í liði Kiel með fimm mörk.Alfreð var í öngum sínum á hliðarlínunni í kvöld.vísir/getty
Handbolti Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Fleiri fréttir Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Sjá meira