Skoðun

Í upphafi skyldi endinn skoða?…

Guðjón S. Björgvinsson skrifar
Undanfarna daga hefur talsverð umræða spunnist í fjölmiðlum og á netinu um ákveðna aðferð sem notuð er til að kenna byrjendum að lesa því læsi í þeim skólum þar sem henni er beitt hefur hrakað umtalsvert ef marka má yfirborðslega skoðun á rannsóknum.

Menntamálaráðherra hefur af þessu áhyggjur sem vonlegt er og segir að þegar menn spyrji hvernig sú ákvörðun hafi verið tekin að beita þessari aðferð hafi fátt orðið um svör. Hann bætir því svo við að nú verði farið að kalla eftir því með markvissum hætti hvernig slíkar ákvarðanir séu teknar, hvort þær hafi verið raunprófaðar og að við höfum eitthvað í höndunum til að rökstyðja slíkar ákvarðanir. Það er nú svo.

Um þessar mundir er verið að gera grundvallarbreytingar á framhaldsskólakerfinu. Það er verið að skera nám þar niður um 20%. Það verður hins vegar ekki fátt um svör þegar sambærilegum spurningum verður varpað fram eftir sex til átta ár þegar í ljós kemur að íslenskir stúdentar komast ekki beint inn í erlenda háskóla og eiga í sífellt meiri erfiðleikum með nám við íslenska háskóla sökum skorts á undirbúningi. Svörin liggja ljós fyrir nú þegar.

Hverjir tóku ákvörðunina? Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra og nokkrir skoðanabræður hans án mikils samráðs við þá sem málið varðar. Hvernig var slík ákvörðun tekin? Fyrir tilstilli Viðskiptaráðs að því er virðist og í andstöðu við þá sem mesta þekkingu hafa á málaflokknum. Hafa afleiðingar niðurskurðarins verið raunprófaðar og höfum við eitthvað í höndunum til að rökstyðja slíka ákvörðun? Nei, það var rennt blint í sjóinn án nokkurrar athugunar eða rökstuðnings nema vísað til sparnaðar fyrir ríkissjóð.

Menntamálaráðherra mun hafa látið þau orð falla að styttingin (les: niðurskurðurinn) yrði arfleifð sín. Höldum því til haga.

Síðan berast fréttir af því að aðeins 7 prósent nemenda kjósa þriggja ára nám í þeim framhaldsskóla sem býður upp á val um þriggja eða fjögurra ára stúdentspróf. Er það ekki umhugsunarefni?




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×