Eftirlíking á geimnum Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 12. júní 2015 10:00 Hrönn og Þorgerður vinna í fyrsta sinn saman að sameiginlegri sýningu sem verður opnuð á morgun í Kunstschlager. Vísir/Vilhelm
Myndlistarkonurnar Hrönn Gunnarsdóttir og Þorgerður Þórhallsdóttir leiða hesta sína í fyrsta skipti saman á sýningunni WHITELESS sem verður opnuð í listamannarekna galleríinu Kunstschlager á morgun. Hrönn og Þorgerður sýna vídeó- og hljóðverk á sýningunni en hugmyndin að henni kviknaði í gegnum Skype. „Ég var í Malmö og Hrönn hér á Íslandi. Mikið af vinnunni fyrir sýninguna fór því fram á Skype sem er mjög fyndið,“ segir Þorgerður og bætir við að þrátt fyrir fjarlægðina hafi undirbúningurinn gengið vel. Í verkunum takast þær á við eftirlíkingar á náttúrunni, manngerða orku og hið efnislega í staðleysunni eða tóminu. „Hrönn hefur mikinn áhuga á hlutum sem tengjast geimnum þannig að mörg verkin fór svolítið að snúastu um eftirlíkingar af honum,“ segir Þorgerður. Hugmyndin kviknaði út frá vídeóverki sem Þorgerður gerði fyrir hálfgerða tilviljun í skólanum en hún stundar mastersnám í myndlist í listaháskólanum í Malmö. „Það var eitthvað spennandi við það, eitthvert ljós í myrkri. Ég sýndi Hrönn það og út frá því ákváðum við að þetta vídeó setti svolítið þemað í sýningunni.“ Á sýningunni verða tíu vídeóverk og eitt hljóðverk sem þær spila hvert á fætur öðru í samspili en nafn sýningarinnar tengist orðinu weightless og eiga verkin það sameiginlegt að vera án þyngdar, ójarðbundin og lifa sjálfstæðu lífi í öðrum heimi. Þrátt fyrir að þetta sé þeirra fyrsta sameiginlega sýning hafa Hrönn og Þorgerður þekkst lengi. „Við vorum saman í Listaháskólanum og í skiptinámi í Berlín á sama tíma þannig að við erum farnar að þekkja vinnu hvor annarrar mjög vel en höfum aldrei leitt hesta okkar saman fyrr en nú.“ WHITELESS er önnur sýningin í sýningaröð Kunstschlager sem er í D-sal Hafnarhússins en galleríið opnaði í húsakynnunum í mars síðastliðnum eftir að hafa verið starfrækt á Rauðarárstíg frá árinu 2012. Sýningin verður opnuð klukkan 15.00 á morgun og stendur yfir til 28. þessa mánaðar og er aðgangur í Kunstschlager stofu ókeypis.
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Fleiri fréttir „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Sjá meira