Bjarki Már á að leysa vítaskyttuvandræði Füchse Berlin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. júlí 2015 20:30 Bjarki Már Elísson. Mynd/Heimasíða Eisenach
Bjarki Már Elísson verður aðalvítaskytta Füchse Berlin á næsta tímabili og er honum ætlað að bæta slæma vítanýtingu liðsins frá síðustu leiktíð. „Það var okkur ekki endilega til tekna að fá víti á síðasta tímabili,“ sagði Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlin, í samtali við Berliner Zeitung. Tvö víti fóru yfirleitt forgörðum í leikjum liðsins - stundum fleiri. Bjarki Már kom til Fücshe Berlin í sumar sem markakóngur þýsku B-deildarinnar en hann lék þá með Eisenach. Hann var vítaskytta liðsins og nýtingin hans meira en 85 prósent. „Ég vona að með honum þá fáum við meiri stöðugleika í vítanýtingunni okkar,“ sagði Hanning. Sjálfur sagði Bjarki Már að honum hafi gengið vel að skora af vítalínunni en að hann muni mæta betri markvörðum í þýsku úrvalsdeildinni en B-deildinni. „Ég mun leggja enn meira á mig á æfingum til að styrkleikar mínir nýtist líka hjá Füchse Berlin,“ sagði hann og bætti við að hann hefði verið vítaskytta í sínum liðum síðan hann var fimmtán ára gamall. Erlingur Richardsson tók við þjálfun Füchse Berlin og starfaði með Bjarka Má hjá HK á sínum tíma. Hann lagði ríka áherslu á að fá Bjarka til þýsku höfuðborgarinnar.
Handbolti Tengdar fréttir Bjarki Már skoraði níu og endaði markahæstur í B-deildinni Bjarki Már Elísson skoraði níu mörk fyrir ThSV Eisenach í tveggja marka liðsins, 33-31, á HG Saarlouis í lokaumferð þýsku B-deildarinnar. 7. júní 2015 16:41 Eisenach upp í efstu deild Eisenach, lið Bjarka Más Elíssonar og Hannesar Jóns Jónssonar, tryggði sér sæti í efstu deild á næsta tímabili. 31. maí 2015 17:04 Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Fleiri fréttir Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Sjá meira
Bjarki Már skoraði níu og endaði markahæstur í B-deildinni Bjarki Már Elísson skoraði níu mörk fyrir ThSV Eisenach í tveggja marka liðsins, 33-31, á HG Saarlouis í lokaumferð þýsku B-deildarinnar. 7. júní 2015 16:41
Eisenach upp í efstu deild Eisenach, lið Bjarka Más Elíssonar og Hannesar Jóns Jónssonar, tryggði sér sæti í efstu deild á næsta tímabili. 31. maí 2015 17:04