Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Ekki láta streituna yfirbuga þig

Sigga Kling skrifar
Elsku meðvirki fiskur. Ég hef stúderað þig lengi og meðvirkasta fólk í heimi er í þínu merki. Þú ert alltof góður, gefur alltof mikið og svo getur þú orðið innanpirraður. Það er allt í lagi að láta fjúka í sig, vera leiður og fara stundum í fýlu. Þú getur ekki alltaf verið uppistandarinn í partýinu.

Þú ert svo tilfinningaríkur og elskar ástina. Þú ert besti maki sem völ er á en þú trúir ekki alltaf að ástin vilji þig. Þú átt það til að vera reiður út í ástina og þá sem þú verður ástfanginn af, það gerir þú til þess að sýna ekki alveg þitt rétta andlit. Þú ert búinn að koma svo mörgu fólki áfram en núna skaltu biðja veröldina um að leysa þín vandamál og SLAKA Á! Það er þinn lykill.

Það er nefnilega algengt að þú fáir streitukvilla og veikindi í kjölfarið. En nú skaltu treysta því að almættið raði upp fullkomnu ferðalagi. Taktu hendurnar af stýrinu og leggðu þig í aftursætinu. Þar vil ég hafa þig um stund til þess að róa þig aðeins niður.

Þú ert að skapa svo miklar minningar núna, bæði hjá þér og öðrum. Þú ert náttúrulega sumarfiskurinn og átt svo mikið af vinum. Núna er tíminn til að kalla á þá og leyfa þeim að umlykja þig. Náttúran gefur þér kraft til að framkvæma, svo það er alveg ljóst að þú ert ekki náttúrulaus. Öll sú listamannsorka sem til er mun vera að fæðast hjá þér núna. Nýttu þér allan þann listamannskraft sem þú hefur, það mun koma þér á kortið. Það elska þig allir.

Mottó: Í erfiðleikunum í kringum mig er falinn demantur.



Frægir í fiskunum: Elísabet Ásberg listamaður, Diana Omel listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Árni Johnsen fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn kóngur.

 


Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Ljón: Margt á döfinni hjá þér

Elsku einstaka ljón. Það væri líklega ekkert að gerast ef þú dveldir ekki á móður jörð. Að sjálfsögðu eru tilfinningarnar búnar að vera þandar eins og flottasta fiðlan í sinfóníunni. Þú hefur verið lítið í þér en einnig stórhuga og haft tröllatrú á öllu.

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburi: Slepptu örygginu um stund

Elsku fallegi tvíburi. Það virðist margt hafa verið að gerast hjá þér. Þú vilt breytingar í líf þitt og það eru mörg tákn búin að vera uppi síðustu tvo mánuði sem sýna þér að það gætu mjög góðir hlutir verið á leið inn í líf þitt.

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Með friðinn að leiðarljósi

Varkára en samt öfluga vogin mín. Þú skalt vera þakklát fyrir alla þá heppni sem er að koma til þín og leysir upp leiðindi, ef þér finnst þau hafa verið hjá þér. Þú munt hægt en örugglega sjá að þú ert að gera rétt. Þú átt eftir að gera mjög gott samkomulag við einhvern náinn þér og þér á eftir að líða miklu betur með það.

Júlíspá Siggu Kling - Bogmaður: Nýttu þér heppnina þína

Besti, besti bogmaður. Þú hefur svo sterkan kjarna og þú veist alltaf hvað þú ætlar að gera. Þú þarft að gera allt svo vel að maður öfundar þig stundum. Happdrætti Háskóla Íslands sagði að bogmaðurinn og vogin væru heppnustu merkin, miðað við þá sem hafa fengið þar vinninga. Þessu trúi ég. Þú átt að nýta þér að það er yfir þér sérstök heppni.

Júlíspá Siggu Kling - Sporðdreki: Vanilla gerir þér gott

Elsku fagri sporðdrekinn minn. Þú ert gæddur svo góðri eftirtekt að það virðist ekkert fram hjá þér fara. Þú hefur svo mikinn áhuga á fólki og það er eins og þú vitir hvað er að fara að gerast hjá sumum. Þú þarft að efla þennan kraft hjá þér og muna að fyrsta hugsunin er sú rétta.

Júlíspá Siggu Kling - Meyjan: Tímabil sameiningar

Elsku þrautgóða meyjan mín. Þetta er tímabil sameiningar. Þú munt ákveða að gifta þig eða ert jafnvel nýbúin að því. Það byrja ný sambönd hjá mörgum meyjunum og þú ert sko tilbúin að ganga inn í ljósið, en þú þarft bara að draga frá gardínurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×