Innlent

„Það er orðin býsna kindarleg stjórnin á þjóðþingi Íslendinga.“

Samúel Karl Ólason skrifar
Helgi Hjörvar.
Helgi Hjörvar. Vísir/Valli
Helgi Hjörvar, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, sagði Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, stjórna þingfundartímum á Alþingi. Össur Skarphéðinsson sló á svipaða strengi og sagði að á meðan hópur hjúkrunarfræðinga og „bhm-ara“ biðu örlaga sinna fyrir utan þinghúsið, væri þingfundi frestað meðan Bjarni Benediktsson héldi fundi um skattalækkanir í Valhöll.

Helgi sagði að rétt væri að halda því til haga að þó rétt væri að þakka forseta Alþingis fyrir að hafa ekki haft þingfund strax í morgun, þá hefði stjórnarandstaðan ekki beðið um frest nema til tólf.

„Það hlýtur að vekja sérstaka athygli að það sé formaður Sjálfstæðisflokksins sem að stýrir hér þingfundartíma eftir því hvenær hann þarf að halda ræður um skattalækkanir í Valholl. Það sé mikilvægara að halda fundi í Valhöll um skattalækkanir heldur en að koma þessu máli á dagskrá“

„Það er orðin býsna kindarleg stjórnin á þjóðþingi Íslendinga.“

Einar Kristinn Guðfinnsson, forseti Alþingis, sagði að þess hafi verið óskað að þingfundur færi ekki fram fyrr en eftir klukkan tólf. Í millitíðinni hafi verið boðaður fundur formanna flokkanna og forseta hafi verið ljóst að sá fundur gæti tekið alllangan tíma.

„Þess vegna kaus forseti það að fresta því að þingfundur hæfist þar til klukkan hálf tvö. Til þess að minnsta kosti væri ekki hægt að kvarta undan því að það væri ekki skapað rými til þeirra nauðsynlegu funda sem forseti hefur fullkominn skilning á að þyrftu að eiga sér stað áður en þessi þingfundur hæfist.“

Hópur hjúkrunarfræðinga og bhm-ara bíður örlaga sinna fyrir utan þinghúsið. En þingfundi er frestað til hálftvö – meðan...

Posted by Össur Skarphéðinsson on Friday, June 12, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×