Sigraðist á matarfíkn og léttist um fimmtíu kíló Stefán Árni Pálsson skrifar 4. júní 2015 11:23 Edda Rós lítur ótrúlega vel út í dag. vísir „
Ég á frænda sem var yfir tvö hundruð kíló og hann ákvað einn daginn að fara inn í MFM-miðstöðina og náði þar alveg frábærum árangri. Hann er matarfíkill en ég hélt aldrei að ég væri það,“ segir Edda Rós Ronaldsdóttir, 24 ára heimavinnandi tveggja barna móðir, sem hefur lést um 50 kíló á einu ári. Hún var mikill kvíðasjúklingur og þunglyndi hafði plagað hana í mörg ár. Hún hefur nú náð tökum á matarfíkn sinni og segir sögu sína á Vísi.MFM Miðstöðin er meðferða og fræðslumiðstöð vegna matarfíknar og átraskana. Þar vinnur fólk með tólf spora kerfið, líkt og í AA-samtökunum og fleiri samtökum. „Ég ákvað að fylgja frænda mínum í MFM og ætlaði fyrst bara að laga matarræðið. Ætlaði mér bara að grennast og hætta svo í MFM. Ég byrja síðan að stunda vinnuna þarna af einlægni. Þá sé ég strax að ég er algjör matarfíkill og haga mér eins og alkahólisti á versta fylleríi, en bara með sykur. Ég var í tíu mánuði í mikilli sjálfskoðun og að vinna í tólf sporunum.“Fyrir og eftir mynd.mynd/aðsendEdda segir að líkaminn hafi einfaldlega fylgt hausnum. „Hausinn á mér var svo gegnsýrður en með tímanum fóru kílóin bara að hrynja af mér. Ég fæ að lifa í kjörþyngt ef ég er andlega heilbrigð. Þessi fíkn lýsir sér þannig að maður fær algjöra þráhyggju fyrir mat. Á meðan ég var að borða einhverja máltíð, þá var ég á sama tíma að pæla í því hvað ég myndi fá mér næst. Ef ég komst í mat, þá var ekkert sem hét pínulítið eða meðal. Ég var ekkert að fá mér nokkra bita, ég fékk mér allan kassann. Ef kassinn var ekki nægilega stór, þá tók ég bara reiðikast af því að þetta var ekki nóg.“ Í dag borðar Edda Rós engan sykur. „Ef ég fór í eitthvað átak og var að reyna grennast þá fór ég bara í full fráhvörf og varð bara veik. Þetta var rosaleg fíkn og ég gerði allt til þess að komast í sykur og sterkju,“ segir Edda. Til að byrja með breytti hún bara matarræðinu og fór ekki á fullt í ræktina. „Svo þegar ég var búin að missa 45 kíló varð ég að fara í ræktina. Ég hef verið feit síðan ég var lítil og aldrei hreyft mig neitt. Ég þurfti bara að styrkja mig.“Edda Rós er tveggja barna móðir.mynd/aðsendEdda er með húðsjúkdóm sem hefur þær afleiðingar að hún verður stundum flekkótt í framan „Þessi sjúkdómur veldur oft miklum kvíða. Ég verð rauð og flekkótt í framan og ég þorði aldrei að stíga inn í líkamsræktarstöð því ég þurfti alltaf að fara ómáluð. Síðan þegar ég var allt einu farin að fara í ræktina, ekki á þeim forsendum til að grennast, þá var þetta allt annað líf.“ Hún segist vita það vel að vinnan við matarfíknina er ævistarf. „Ég er ekki alveg búin að klára tólf sporin, en ég sæki í dag fundi hjá samtökunum. Það er bara ekki í boði fyrir mig að hætta í þessari vinnu. Lífsgæði mín verða enginn ef ég hætti,“ segir hún og bætir við að munurinn á henni fyrir ári síðan og í dag sé ótrúlegur. „Þótt maður sjái sömu manneskjuna á myndum, þá er þetta ekki sama Eddan. Ég lifi allt öðruvísi, ég er ekki þunglynd, ég kemst út úr húsi, ég er ekki haldni kvíða og er bara mikið glaðari alla daga. Í dag get ég gert allt, áður gat ég ekki gert neitt.“
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira