Breiðhyltingar sem snúa aftur í gamla hverfið sitt á Breiðholt Festival Stefán Árni Pálsson skrifar 8. júní 2015 17:00 vísir/gva
Næstkomandi laugardag, 13. júní, fer hátíðin Breiðholt Festival fram í fyrsta sinn. Eins og nafnið gefur til kynna verður hátíðin í Breiðholti og er það von aðstandenda að sem flestir geri sér ferð í hverfið til að njóta fjölda ókeypis viðburða, en hátíðin er gjaldfrjáls og öllum opin. Nú hefur fleiri listamönnum verið bætt við dagskrá hátíðarinnar, en hér að neðan má sjá heildarlista listamanna; Ben Frost – 6 Guitars Nico Muhly Samaris Cell7 Kira Kira Sjón Stelpur Rokka! DFM Company Lúðrasveit Breiðholts og Árbæjar Gunnar Jónsson Collider Ragnheiður Harpa Leifsdóttir Davíð Örn Halldórsson Parabolur KGB Wesen DOD Hrefna Björg Gylfadóttir - ljósmyndasýning Kristín Dóra Ólafsdóttir – Örsögur Die Jodlerinnen Ljóst er að flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni, bæði músíkalskir næturhrafnar sem og fjölskyldufólk í ævintýraleit. Viðburðir hátíðarinnar fara fram milli 12 og 22 á nokkrum vel völdum stöðum í Seljahverfi og í kring. Sem dæmi um viðburði má nefna píanóverk Bedroom Community-tónlistarmannsins Nico Muhly í Gróðurhúsinu hljóðveri, þar sem hann hefur tekið upp og samið fjölmörg verk um árabil. Ölduselslaug býður upp á örsögur og ljósmyndasýningu allan daginn og tónlistarfólk úr Breiðholti treður upp, til að mynda KGB og Gunnar Jónsson Collider. Í skúlptúrgarðinum leika lúðrasveitir og gestir fá einnig tækifæri til að leika sér, með listakonunni Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur. Í vinnusmiðju við skúlptúrgarðinn bjóða Parabólur upp á tónlist og Sjón les ljóð. Hólmasel er heimili listasmiðja; Stelpur Rokka og Dansaðu fyrir mig bjóða þar upp á fjölbreytta dagskrá auk þess sem danskt-íslenskt samstarfsverkefni sér um að reisa öndvegissúlu Breiðholts með íbúum og gestum til að deila sögum hverfisins. Á tónleikasvæðinu troða upp Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts, Ben Frost og vel valdir gestir flytja ‘6 Guitars’, auk Kiru Kiru, Wesens, Cell7 og Samaris sem loka hátíðinni. Fleira verður um að vera, líkt og markaðir á vegum Breiðhyltinga. Eins og áður segir miðar Breiðholt Festival að eflingu samfélags og listsköpunar í Breiðholti. Þorri listamanna sem koma fram á hátíðinni eru Breiðhyltingar sem snúa hér með aftur í gamla hverfið sitt þennan dag til að leggja sitt af mörkum. Er það von aðstandenda að laugardagurinn 13. júní verði aðeins byrjunin á Breiðholt Festival og að hátíðin muni vaxa og dafna með árunum.
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Fleiri fréttir „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Sjá meira