Þvertaka fyrir að hafa ruðst inn á hótelherbergið Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 17. maí 2015 22:50 Guðjón í baði ásamt félaga sínum. Myndin er tekin á umræddu hótelbergi að sögn Guðjóns. „
Engum munum var stolið og það er fullkomlega ósatt að við höfum „ruðst“ inn á hótelherbergi,“ skrifaði Guðjón Heiðar Valgarðsson í fréttatilkynningu sem hann sendi fréttastofu nú í kvöld. Í samtali við Vísi sagðist hann hafa orðið ansi hissa þegar hann sá frétt Vísis á laugardag þess efnis að fimm menn hefðu ruðst inn á hótelherbergi erlends ferðamanns. Hann sagði málsatvik hafa verið með allt öðrum hætti en í tilkynningu frá lögreglu. „Ættu öryggismyndavélar hótelsins að sanna þetta svo ekki verði um villst.“ Heimildir Vísis herma að atburðirnir hafi átt sér stað á Grand Hótel.Sjá einnig: Fimm ruddust inn á hótelherbergi ferðamanns Guðjón útskýrði kvöldið með öðrum hætti. „Við hittum bandaríska stelpu á bar í miðbæ Reykjavíkur. Við höfðum verið að spjalla við þau og þá bjóða þau okkur í partý.“ Bandaríska stúlkan var þar ásamt tveimur karlmönnum sem deildu með henni hótelherbergi. Þeir félagar fóru á herbergið enda gaman að vera boðið í partý af undarlegum Ameríkönum á hótelherbergi að sögn Guðjóns.Tóku fullt af myndum í baði „Við förum í partýið og vorum þar í svona tvo tíma.“ Í partýinu hafi Guðjón og félagi hans tekið upp á því að fara í bað og taka myndir fyrir hljómsveit sína Átrúnaðargoðin, „Photoshoot í baði.“ Þeir segjast eiga margar myndir af sér ásamt ferðamönnunum og sérstaklega af baðherberginu. Guðjón telur þær sýna svo ekki svo um verði villst að þeir voru þarna með fullu samþykki eiganda herbergisins. Eina myndina má sjá hér að ofan. Hann lýsir því svo fyrir blaðamanni að þegar þeir vinirnir voru á leið af hótelinu hafi þeir áttað sig á því að stúlkan skuldaði þeim pening sem þeir höfðu lánað henni fyrr um kvöldið. Þegar þeir hafi haldið til baka og beðið um að ná tali af stúlkunni vegna skuldarinnar hafi vinur stúlkunnar brugðist ókvæða við. Verið lafandi hræddur. Guðjón telur að hann hafi haldið að þeir ætluðu að ganga í skrokk á honum. „Við vorum samt alls ekkert ógnandi eða neitt,“ fullyrðir hann. Maðurinn tók að banka á nærliggjandi hurðir og þeim vinunum leist ekkert á aðstæðurnar og hurfu á braut.Einn vinurinn handtekinn „En vinur okkar varð eftir með stelpunni,“ útskýrir Guðjón. Hann sagði að hann hefði ekki viljað fara án þess að hún gæfi einhvers konar tryggingu fyrir skuldinni. Hún lét hann því hafa kortið sitt. Þegar lögregla handtók drenginn þar sem hann hafði ekki farið ásamt vinum sínum heim af hótelinu var hann með greiðslukort hennar í fórum sínum. Guðjón heldur að þá hafi verið talið að komin væri sönnun fyrir því að vinirnir hefðu farið ránshendi um hótelherbergið. Guðjón segir það hins vegar af og frá. „Að við höfum stolið einhverjum munum er algjört kjaftæði. Við fórum út af hótelinu og aftur niður í bæ og héldum áfram að skemmta okkur. Síðan lásum við þessa frétt og að við hefðum verið að brjótast inn og fréttum stuttu síðar að vinur okkar hefði verið handtekinn.“ Guðjón vildi fyrir hönd hljómsveitar sinnar Átrúnaðargoðanna koma sögunni áleiðis. Sérstaklega svo að lögregla sé ekki að eyða tíma í að leita að innbrotsþjófum þar sem engir eru eins og hann kemst að orði.Uppfært klukkan 10:05Konan á myndinni, sem birtist með fyrstu útgáfu fréttarinnar, var ekki erlendi ferðamaðurinn heldur hluti af vinahópi Guðjóns. Konan hafði ekki gefið vinum sínum leyfi fyrir birtingu myndarinnar og var henni því skipt út.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira