Sjö handteknir vegna eins stærsta gimsteinaráns sögunnar Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2015 16:26 Til að komast að öryggishólfunum þurftu þjófarnir að bora stórar holur í gegnum 50 sentímetra þykkan vegg. Vísir/AFP
Sjö menn hafa verið handteknir fyrir aðild að Hatton Garden gimsteinaráninu í apríl. Þá brutust menn inn í öryggisþjónustu sem rak öryggishólf fyrir gimsteinasala og komust undan með peninga og gimsteina sem metið var á um 200 milljónir pund. Það samsvarar um 41 milljarði króna. Um 200 lögregluþjónar gerðu atlögu að 12 stöðum þar sem mennirnir sjö voru handteknir, en þar að auki fundust stórir pokar sem lögreglan segir að hafi að öllum líkindum innihaldið þýfi. Mennirnir eru allir breskir og eru á aldrinum 48 til 76 samkvæmt Sky News. Öryggisfyrirtækið sem mennirnir brutust inn í var rekið á svæði í London þar sem fjölmörg skartgripafyrirtæki eru rekin og eigendur þeirra geymdu margir hverjir dýrmæta gimsteina í öryggishólfum.Boruðu sig í gegnum þykkan vegg Ránið átti sér stað yfir páskahelgina þegar fáir voru á ferðinni í hverfinu og fengu þjófarnir nægan tíma til að athafna sig. Til að komast að öryggishólfunum þurftu þjófarnir að bora stórar holur í gegnum 50 sentímetra þykkan vegg. Þegar það var búið tæmdu þeir fjölda öryggishólfa og komust undan á hvítum sendiferðabíl. Lögreglan var gagnrýnd vegna ránsins og þá sérstaklega þegar í ljós kom að lögreglan brást ekki við þegar viðvörunarkerfi fór í gang í versluninni. Í yfirlýsingu frá lögreglunni segir að verkferlum hafi ekki verið fylgt eftir rétt, annars hefðu lögregluþjónar farið á vettvang. Hér að neðan má sjá frá blaðamannafundi lögreglunnar í London í dag.
Tengdar fréttir Mögulega stærsta gimsteinarán sögunnar Talið er að gimsteinar sem stolið var í London um helgina sé þegar komnir úr landi. 8. apríl 2015 14:30 Mest lesið Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Lögreglan leitar að Heklu Innlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Innlent Fleiri fréttir Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Sjá meira
Mögulega stærsta gimsteinarán sögunnar Talið er að gimsteinar sem stolið var í London um helgina sé þegar komnir úr landi. 8. apríl 2015 14:30