Berglind Jónsdóttir leikur Önnu Björnsdóttur í Johnny Depp mynd um James Bulger Birgir Olgeirsson skrifar 24. apríl 2015 10:30 Johnny Depp fer með hlutverk James Whitey Bulger í kvikmyndinni Black Mass. Það var Anna Björnsdóttir sem veitti ábendingu árið 2011 sem leiddi til handtöku Bulgers en Berglind Jónsdóttir mun fara með hlutverk Önnu í kvikmyndinni Black Mass. Vísir/YouTube/Imdb
Kvikmyndin Black Mass er væntanleg í kvikmyndahús í september en hún segir frá lífi bandaríska glæpamannsins James WhiteyBulger. Það er enginn annar en JohnnyDepp sem fer með hlutverk þessa alræmda glæpamanns og hefur hann nú þegar verið orðaður við Óskarsverðlaunin fyrir frammistöðu sína í hlutverki Bulgers. Allavega þykir erlendum miðlum hann vera nógu ófrýnilegur að sjá til að heilla Óskarsverðlaunaakademíuna. Sögu Bulger þekkja margir en hann var einn alræmdasti glæpamaður Bandaríkjanna um margra ára skeið. Á seinni stigum ferils síns gerðist hann uppljóstrari fyrir bandarísku alríkislögreglunnar FBI til að koma í veg fyrir uppgang ítalsks glæpagengis á svæði hans í Boston. Er hann sagður hafa notið ákveðinnar friðhelgi frá yfirvöldum á meðan hann veitti upplýsingarnar en í desember árið 1994 fór hann í felur eftir að hann komst að því að ákæra ætti hann fyrir morð á nítján manneskjum. Á þeim tíma var hann tólf ár ofarlega á lista FBI yfir eftirlýsta menn og um tíma var hann næstur á eftir Osamabinladen. James Whitey Bulger 22. júní árið 2011 var hann handtekinn við heimili sitt í SantaMonica í Kaliforníu. Yfirvöld höfðu þá fengið ábendingu frá Önnu Björnsdóttur um veru Bulgers í SantaMonica. Var Anna stödd í Reykjavík þegar hún hafði samband við FBI eftir að hafa séð mynd af Bulger á bandarísku fréttastöðinni CNN og þekkti kauða strax. Hún hafði marg oft séð hann áður en hann var nágranni hennar í SantaMonicu. Anna fékk tvær milljónir dollara, eða sem nemur 272 milljónum íslenskra króna í dag, fyrir ábendinguna en hún kemur einmitt fyrir í þessari kvikmynd um ævi Bulgers. Í Black Mass er Anna leikin af íslensku leikkonunni Berglindi Jónsdóttur sem hefur meðal annars verið statisti í myndum á borð við Dumb andDumberto, TheHungerGames: CatchingFire og JayneMansfield´scar. Þá lék hún einnig sænskan embættismann í TheGoodLie. Hún hefur einnig komið fyrir í sjónvarpsþáttum ytra og auglýsingum en á meðal þess sem kemur fyrir á ferilskrá hennar á kvikmyndavef IMdB.com þá lék hún einnig í auglýsingu fyrir SPRON á Íslandi. Í leikhúsi hefur hún komið fyrir í LaBoheme í norsku óperunni og Töfraflautunni í þeirri íslensku.
Bandaríkin James Whitey Bulger Tengdar fréttir Fríða kom upp um „dýrið“ "Það er ótrúlegt að það hafi þurft fegurðardrottningu frá Íslandi til þess að hafa uppi á einum hættulegasta glæpamanni Bandaríkjanna," segir rannsóknarblaðamaður Boston Globe um mál Whitey Bulger sem var handtekinn eftir ábendingu frá Önnu Björnsdóttur. 9. október 2011 19:30 Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Fleiri fréttir Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Sjá meira
Fríða kom upp um „dýrið“ "Það er ótrúlegt að það hafi þurft fegurðardrottningu frá Íslandi til þess að hafa uppi á einum hættulegasta glæpamanni Bandaríkjanna," segir rannsóknarblaðamaður Boston Globe um mál Whitey Bulger sem var handtekinn eftir ábendingu frá Önnu Björnsdóttur. 9. október 2011 19:30