Lögreglumaður í New York kærður fyrir að bana óvopnuðum manni Bjarki Ármannsson skrifar 10. febrúar 2015 23:32 Lögreglumaður að störfum í New York. Vísir/AP
Lögreglumaður í New York-borg sem skaut til bana óvopnaðan svartan mann í nóvember síðastliðnum hefur verið kærður vegna atviksins. Þetta hefur fréttastofa BBC eftir lögmanni kærustu hins látna en ekki hefur verið tilkynnt um kæruna opinberlega. Lögreglumaðurinn Peter Liang skaut hinn 28 ára Akai Gurley á stigagangi við íbúð Gurley þann 20. nóvember án viðvörunar og að því er virðist fyrir slysni. Fjölmenn mótmæli áttu sér stað víða um Bandaríkin í nokkrum nýlegum tilfellum þar sem ákveðið var að kæra ekki lögreglumenn sem höfðu orðið öðrum óvopnuðum svörtum mönnum að bana í starfi sínu. Þekktust eru sennilega tilfelli hins átján ára Michael Brown í bænum Ferguson og hins 43 ára Eric Garner í New York. Yfirmaður Liang hjá lögreglunni segir hann eiga rétt á sanngjarnri málsmeðferð. Það verði að hafa í huga að Liang hafi verið á vakt í einni hættulegustu íbúðablokk borgarinnar. Þá hefur borgarstjóri New York, Bill deBlasio, kallað eftir því að fólk treysti á réttarkerfið í þessu máli og vottað fjölskyldu Gurley samúð sína.
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira