Enn ein hópnauðgunin á Indlandi Atli Ísleifsson skrifar 3. janúar 2015 14:13 Hópnauðgunarmál hafa verið áberandi í indverskum fjölmiðlum síðustu ár og vakið upp mikla reiði meðal almennings. Vísir/AFP
Fimm menn hafa verið handteknir á Indlandi vegna gruns um að hafa rænt og ítrekað nauðgað japönskum námsmanni í borginni Kalkútta í austurhluta landsins. Lögregla segir að konunni hafi verið rænt þann 23. nóvember og hafi árásirnar staðið yfir í rúman mánuð á að minnsta kosti tveimur mismunandi stöðum í landinu. Talsmaður lögreglu segir að liðsmenn gengis í borginni séu grunaðir um að beina spjótum sínum að kvenkyns ferðamönnum sem eru einir á ferð. Hópnauðgunarmál hafa verið áberandi í indverskum fjölmiðlum síðustu ár og vakið upp mikla reiði meðal almennings, sér í lagi eftir að ungri konu var hópnaugað í strætisvagni í Nýju-Delí og lést í kjölfarið fyrir tveimur árum síðan. Pallav Kanti Ghosh, talsmaður lögreglunnar í Kalkútta, segir að tveir árásarmannanna, sem eru bræður, hafi nálgast 23 ára konuna undir því yfirskini að vera leiðsögumenn þegar hún mætti til borgarinnar og skráði sig inn á hótel í vinsælu ferðamannahverfi. „Einn mannanna talaði reiprennandi japönsku.“ Ghosh segir mennina hafa farið með konuna til strandbæjarins Digha þann 23. nóvember. Þar hafi þeir ráðist á hana og rænt með því að taka út fé af bankakorti hennar.Í frétt BBC kemur fram að konan hafi síðar verið flutt til Bodh Gaya, helgasta staðar meðal búddista, sem einnig er vinsæll ferðamannastaður. Þar var henni áfram haldið og nauðgað ítrekað. Konan slapp úr haldi mannanna í lok desember og hélt aftur til Kalkútta þar sem hún tilkynnti um málið á japönsku ræðismannsskrifstofunni. Ghosh segir að þrír mannanna hafi verið handteknir nærri Bodh Gaya og tveir í Kalkútta, en lögregla leitar nú fleiri liðsmanna gengisins.
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi Sjá meira