Miami fékk skell | Myndbönd Anton Ingi Leifsson skrifar 4. janúar 2015 10:58 Vísir/Getty
Miami fékk skell í NBA-körfuboltanum í nótt þegar þeir mættu til Houston. Miami vann fyrsta leikhlutann 27-23, en fengu svo skelli í öðrum og þriðja leikhluta. Þeir töpuðu öðrum leikhlutanum 38-22 og þeim þriðja 33-11. Lokatölur urðu svo 115-79, Houston í vil. James Harden lék vel í liði Houston og skoraði 28 stig, en Dwayne Wade og Chris Bosh voru stigahæstir með fimmtán stig hvor. Þeir tóku báðir fjögur fráköst að auki. Ríkjandi meistarar í San Antonio Spurs unnu annan leikinn í röð í nótt. Þeir unnu Washington með níu stiga mun, 101-92. Cory Joseph var stigahæstur hjá meisturunum með nítján stig, en þeir Bradley Beal og John Wall voru stigahæstir hjá Washington með 15 stig hvor. Hinn 24 ára gamli Kemba Walker var í stuði í nótt fyrir Charlotte gegn Orlando. Kemba skoraði 30 stig í átta stiga sigri Charlotte, 98-90, en auk þess tók hann sex fráköst. Paul Gasol var með flotta tvennu í naumum sigri Chicago í framlengdum leik gegn Boston, 109-104. Gasol skoraði 29 stig og tók sextán fráköst. Evan Turner var stigahæstur hjá Boston með 29 stig. Það gengur afleitlega hjá Minnesota, en þeir töpuðu í nótt sínum ellefta leik í röð þegar þeir biðu í lægri hlut gegn Utah á heimavelli, 101-89. Þeir hafa einungis unnið fimm af sínum 32 leikjum í vetur.Öll úrslit næturinnar: Charlotte - Orlando 98-90 Miami - Houston 79-115 Washington - San Antonio 92-101 Atlanta - Portland 115-107 Boston - Chicago 104-109 Utah - Minnesota 101-89 Memphis - Denver 85-114 Philadelphia - LA Clippers 91-127Það besta úr leikjunum átta í nótt: Þetta er fallegt: Vince Carter í stuði: Chris Paul átti góðan leik í nótt: SVAKALEG troðsla:
Körfubolti Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira