Mögulega stærsta gimsteinarán sögunnar Samúel Karl Ólason skrifar 8. apríl 2015 14:30 Þjófarnir brutust inn í 60 til 70 öryggishólf. Vísir/EPA
Bíræfnir þjófar stálu gífurlegum fjölda gimsteina og skartgripa í London um helgina. Talið er að þjófarnir hafi brotið sér leið í gegnum þak húss, farið niður lyftugöngin og brotist inn í öryggishvelfingu. Mögulega er þetta stærsta rán sögunnar. Í húsinu er rekið öryggisfyrirtæki sem sér um varðveislu hráefnis fyrir skartgripaframleiðendur. Lögreglan í London segir að þjófarnir hafi notað þungar iðnaðarvélar til að brjóta sér leið inn í öryggishvelfinguna, þar sem þær rændu munum úr 60 til 70 öryggishólfum. Á vef Sky News segir að hvelfingin hafi verið styrkt með málmum og steypu og að hurðin hafi verið um 60 sentímetra þykk. Sérfræðingur sem rætt er við segir að þýfið sé nú þegar komið úr landi. Hann líkir ráninu við eitthvað sem sést í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.Flestir eigendur ótryggðir Fyrirtækið er í Hatton Gardon hverfinu í London, sem þekkt er fyrir skargripaframleiðslu. Mörg af öryggishólfunum voru í eigu skartgripaframleiðenda sem geymdu dýrmæta steina þar. Eigandi eins hólfs sem Sky ræddi við sagði að eigendur hólfanna væru flestir ótryggðir. Lögreglan hefur ekki safnað saman upplýsingum um hvert heildarverðmæti þýfisins er, þar sem þeir vita ekki enn hverju var stolið. Áætlanir segja til um allt frá hundruðum þúsunda punda verðmæti að 200 milljónum punda verðmæti, sem samsvarar um 40 milljörðum króna. Öryggiskerfi hússins fór í gang á föstudagskvöldið og mættu öryggisverðir á svæðið. Þeir fóru hins vegar ekki inn og horfðu bara inn í gegnum gluggana. Þar sem þeir sáu enga hreyfingu fóru þeir í burtu. Þjófarnir höfðu því mögulega alla páskahelgina til að athafna sig. Lögreglan heyrði ekki af þjófnaðinum fyrr en í gær. Sé þýfið komið úr landi telja sérfræðingar að nánast ómögulegt sé að það finnist.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira