Snillingar framtíðarinnar? Marta Hrafnsdóttir skrifar 1. október 2015 11:18 Er menntakerfi okkar tilbúið til þess að horfast í augu við þá áskorun sem framtíðin ber í skauti sér? Er námsefnið sniðið að þörfum næstu kynslóðar sem tekur við af okkur? Hefur einhver velt því fyrir sér hversu ört tækninýjungum rignir yfir okkur svo okkur fullorðna fólkinu þykir stundum nóg um? Þeim á bara eftir að fjölga og hraðinn á öllum þessum nýungum á bara eftir að verða meiri. Menntakerfið í dag er ekki hannað til þess að takast á við þessar áskoranir. Hönnun þess horfir frekar til fortíðar en til framtíðar. Það er áhugavert að skoða t.d. stigveldi menntunar. Efst eru raungreinar og tungumál og þar fyrir neðan eru húmanísku fögin s.s. félagsfræði, sálfræði og þá íþróttir. Neðst eru svo listgreinar sem einnig er raðað eftir ákv. stigveldi þar sem tónlist og myndlist er efst en dans og leiklist neðst. Svo þegar skó kreppir að eða hækka á staðalinn í skólum, eru listfögin alltaf fyrst út af borðinu. Fyrst þau neðstu og svo koll af kolli. Tungumál og raungreinar virðast vera mikilvægust en saga, félagsfræði og listgreinar ekki, svo eitthvað sé nefnt. Árið 2001 voru ný lög samþykkt í Bandaríkjunum nefnt Elementary and Secondary Education Act (ESEA) sem gekk út á að hækka staðalinn í skólum landsins og undirbúa nemendur betur undir háskólanám og jafnframt samkeppnishæfni Bandaríkjanna í heild. Áhersla var á stærðfræði og tungumál og þessi fög reglulega prófuð. Því fleiri nemendur sem skiluðu ásættanlegum niðurstöðum úr þessum prófum, því hærri styrkur var veittur í tiltekins skóla. Og hvað gerðist? Listkennslan datt út, húmanísku greinarnar margar hverjar líka eða urðu píp eitt. Nemendur hættu í umvörpum og kennarar sömuleiðis. Þetta varð að vítahring því fjármagn kom einungis inn ef þessar tvær greinar skiluðu góðum niðurstöðum. Eins og gefur að skilja virkaði kerfið ekki eins og skildi. Það er eins og forráðamenn átti sig ekki á því að til þess að efla menntun þarf einmitt að hlúa einnig að húmanísku greinunum, listgreinunum, íþróttum og efla tengingu allra þessara greina þar með talið raungreinar og tungumál. Hefur einhver fengið jafn mikla kennslu í stærðfræði og dansi í grunn eða menntaskóla? Af hverju ekki? Rökin eru þau að t.a.m. listgreinar séu ekki ávænlegar þegar kemur að framtíðarstarfi en raungreinar séu það aftur á móti. Hverjum dettur í hug að segja að allir komi til með að verða stærðfræðingar í framtíðinni? Þá komum við að rótum vandans. Tæknivæðingin er svo hröð að t.d. venjulegur stærðfræðingur framtíðarinnar sem einungis hefur fengið menntun í téðum raungreinum og tungumálum en enga eða mjög takmarkaða listkennslu á mun erfiðara með að takast á við og bregðast við stöðugt nýjum og óvæntum breytingum því það vantar alveg inn í menntun hans sköpunarþáttinn. Hvernig á hann að bregðast við stöðugum nýjungum? Með líkindareikningi? Þetta vandamál er þegar til staðar því mörg alþjóðleg fyrirtæki kvarta yfir því að það vanti einmitt þennan þátt inn þó svo að einstaklingurinn sem hefur verið ráðinn sé með bestu mögulegu menntun og gráðu! Ef sköpunarþátturinn er virkur í gegnum allt menntastigið er alveg ljóst að menntakerfið gæti gefið af sér miklu heilsteyptari og sterkari einstaklinga til þess að takast á við framtíðina. Af hverju? Jú, það er svo erfitt að takast á við hið óvænta, ókunnuga sem býður stöðugt handan við hornið ef hugsunin er ekki nógu frjó. Staðreyndir dagsins breytast svo hratt og verða úreltar á morgunn þar sem 6+6 gæti orðið 13 þó það sé óhugsandi í dag. Því endurtek ég að menntakerfið horfir ekki fram á við heldur horfir frekar um öxl sér. Við ólumst ekki upp við þennan hraða en þær framfarir sem við sjáum í dag eru þegar með ólíkindum. Ef við lítum bara 20 ár aftur í tímann þar sem engan eða í það minnsta örfáa dreymdi um þá þróun og möguleika internetsins sem við búum við í dag. Ímyndið ykkur svo það sem börnin í dag eiga eftir að upplifa í framtíðinn! Nano tækni eða gervigreind fremri en mannleg greind svo eitthvað sé upp talið og stöðugar nýjar framfarir við hvert fótmál. Ekki gleyma því að eitt af grunnþáttum listnáms er einmitt sköpunarþátturinn. Ég held að fólk átti sig ekki almennilega á hversu mikilvægur þáttur þetta er í menntun okkar. Íslendingar hafa verið heppnir því hlutfallslega margir, ef litið er til annara þjóða, hafa getað sótt sér tónlistarkennslu eða aðra listkennslu utan almenns skólatíma en þetta kostar og er ekki aðgengilegt öllum og ekki er útlitið beysið fyrir tónlistarskóla landsins eins og staðan er í dag. Fæstir foreldrar sjá fyrir sér framtíðar listamann þegar þau setja börnin sín í eitthvert listnám heldur eru þau að gefa börnunum tækifæri til þess að þróa listsköpun sína. En hvað ef listgreinum yrði sett jafn hátt undir höfði og nýttar inn í aðrar greinar? Til dæmis Stærðfræði/ íþróttir, dans/ tungumál, saga/myndlist, tónlist/stærðfræði? Ég sé endalausa möguleika bæði fyrir kennara og nemendur. Stærðfræði gæti orðið skemmtilega skapandi, börn fengju tækifæri til þess að þróa sköpunargetu sína hvort sem er í lestri, list eða rannsóknarvinnu. Öll börn búa yfir getu til sköpunar. Það er okkar að finna leið til þess að virkja þennan þátt inn í menntakerfið svo börnin séu betur undirbúin undir framtíðina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun