Blákalt um birtingu RÚV-skýrslu Björg Eva Erlendsdóttir skrifar 7. nóvember 2015 07:15 Eyþór Arnalds, RÚV-skýrsluhöfundur, sendir undirritaðri kuldakveðju í Fréttablaðinu fyrir helgi og sakar um ósæmilegar rangfærslur af ýmsu tagi. Eyþór telur sig vita betur en ég, sem þó sit í stjórn RÚV, hvenær stjórnin fékk skýrsluna. Upplýst skal að skýrslan kom til stjórnar í tölvupósti frá útvarpsstjóra 29. október, klukkan 13.39. Þrjátíu og níu mínútum eftir að hún var kynnt almenningi á blaðamannafundi í Þjóðminjasafninu. Mörgum dögum áður hafði birst umfjöllun um skýrsluna og tilvísanir í hana og skýrslubrot á Eyjunni. Og síðar hefur komið fram að almannatengill sá um dreifinguna. Í viðbót við ásakanir um rangfærslur, dylgjur og að fara í manninn en ekki boltann, telur Eyþór að ég ætti að nota tímann til að skoða vanda útvarpsins af yfirvegun og ræða efnisatriði skýrslunnar, sem menntamálaráðherra telji svo góðan umræðugrunn. Og vissulega verður fróðlegt að ræða efnisatriði skýrslunnar við ráðherrann sem pantaði hana. Eyþór hefði hins vegar mátt ræða við fleiri á meðan skýrslan var í vinnslu, en þar vantaði talsvert upp á af hans hálfu. En nú hefur starfandi formaður RÚV, Guðlaugur Sverrisson, boðað fund með skýrsluhöfundum á mánudag. Fullseint er það og ekki að frumkvæði skýrsluhöfunda, sem virðast ekki hafa gefið því gaum að yfir RÚV, var og er, þverpólitísk stjórn kjörin af Alþingi, þótt skýrslan gagnrýni stjórnir RÚV frá ohf-stofnun. Hefðu vandvirkir skýrsluhöfundar ekki átt frumkvæði að því að gefa bæði fyrrverandi og núverandi stjórnendum RÚV færi á að útskýra sínar ákvarðanir, meðan skýrslan var í vinnslu? Í stað þess að birta hana í samkeppnismiðlum fyrst og rífast svo um hana við þá sem bornir eru sökum í fjölmiðlum á eftir. Því sýnist mér að málið liggi núna þannig að það sé Eyþór Laxdal Arnalds sem skuldi afsökunarbeiðni. Og ekki mér sérstaklega, heldur öllum þeim sem vilja Ríkisútvarpinu vel og að áfram starfi fjölmiðill í þágu og í eigu almennings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Sjá meira
Eyþór Arnalds, RÚV-skýrsluhöfundur, sendir undirritaðri kuldakveðju í Fréttablaðinu fyrir helgi og sakar um ósæmilegar rangfærslur af ýmsu tagi. Eyþór telur sig vita betur en ég, sem þó sit í stjórn RÚV, hvenær stjórnin fékk skýrsluna. Upplýst skal að skýrslan kom til stjórnar í tölvupósti frá útvarpsstjóra 29. október, klukkan 13.39. Þrjátíu og níu mínútum eftir að hún var kynnt almenningi á blaðamannafundi í Þjóðminjasafninu. Mörgum dögum áður hafði birst umfjöllun um skýrsluna og tilvísanir í hana og skýrslubrot á Eyjunni. Og síðar hefur komið fram að almannatengill sá um dreifinguna. Í viðbót við ásakanir um rangfærslur, dylgjur og að fara í manninn en ekki boltann, telur Eyþór að ég ætti að nota tímann til að skoða vanda útvarpsins af yfirvegun og ræða efnisatriði skýrslunnar, sem menntamálaráðherra telji svo góðan umræðugrunn. Og vissulega verður fróðlegt að ræða efnisatriði skýrslunnar við ráðherrann sem pantaði hana. Eyþór hefði hins vegar mátt ræða við fleiri á meðan skýrslan var í vinnslu, en þar vantaði talsvert upp á af hans hálfu. En nú hefur starfandi formaður RÚV, Guðlaugur Sverrisson, boðað fund með skýrsluhöfundum á mánudag. Fullseint er það og ekki að frumkvæði skýrsluhöfunda, sem virðast ekki hafa gefið því gaum að yfir RÚV, var og er, þverpólitísk stjórn kjörin af Alþingi, þótt skýrslan gagnrýni stjórnir RÚV frá ohf-stofnun. Hefðu vandvirkir skýrsluhöfundar ekki átt frumkvæði að því að gefa bæði fyrrverandi og núverandi stjórnendum RÚV færi á að útskýra sínar ákvarðanir, meðan skýrslan var í vinnslu? Í stað þess að birta hana í samkeppnismiðlum fyrst og rífast svo um hana við þá sem bornir eru sökum í fjölmiðlum á eftir. Því sýnist mér að málið liggi núna þannig að það sé Eyþór Laxdal Arnalds sem skuldi afsökunarbeiðni. Og ekki mér sérstaklega, heldur öllum þeim sem vilja Ríkisútvarpinu vel og að áfram starfi fjölmiðill í þágu og í eigu almennings.
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun