Fyrrum landsliðsþjálfari í handbolta flytur inn bjóra frá Borg til Finnlands Stefán Árni Pálsson skrifar 22. október 2015 14:30 Bruggarar hjá Borg til vinstri og Kaj er til hægri. vísir
Borg Brugghús lendir á markaði í Finnlandi í þessari viku. Af því tilefni stendur brugghúsið fyrir viðburði á einum flottasta bjórbar Helsinki í kvöld. Þar munu bruggmeistararnir taka á móti gestum og leiða þá í sannleikann um nokkra af fjölmörgum bjórum Borgar sem seldir verða á staðnum. Ennfremur tekur Borg þátt í Olut Expo um helgina - stærstu bjórsýningu landsins sem telur nokkur þúsund gesti. Svo verður siglt út í eyjuna Iso Mustasaari á laugardaginn til að brugga finnsk-íslenskan samstarfsbjór með brugghúsinu Suomenlinnan Panimo. „Já, ég hlakka mikið til enda dagskráin þétt og lítur vel út. Sjálfur er ég spenntastur fyrir samstarfsbrugguninni og finnst fátt skemmtilegra en að hitta hressa kollega og hræra í eitthvað óvænt,“ segir Árni Long bruggmeistari hjá Borg Brugghúsi. „Við höfum kastað á milli einhverjum hugmyndum af bjórnum en þetta er allt mjög óræðið ennþá. Eina sem er ákveðið er að reyna að sameina íslenska og finnska menningu á einhvern hátt. Við erum búnir að sanka að okkur einhverjum hráefnum og restin verður svo bara að fá að koma í ljós.“ Árni segir að fyrstu sendingarnar séu að lenda í Finnlandi í þessari og næstu viku. „Mér skilst að Garún og Leifur séu bæði að fara í einhverja sölu í Alko, ríkisverslunum Finna, en svo er mest af þessu magni að fara á bari og veitingahús,“ segir Árni. Það er fyrirtækið Uniq Drinks Finland sem flytur bjórinn inn og selur fyrir hönd Borgar Brugghúss.Féll fyrir bragðinu Tildrög samstarfsins má rekja til þess að einn sölustjóri þess, Kaj Kekki, var staddur á Eistlandi þar sem hann smakkaði bjórinn Garúnu nr.19 frá Borg í fyrsta skipti og féll algjörlega fyrir bragðinu. Í kjölfarið setti hann sig í samband við Borg og þurfti til þess að leggja í forneskjulegar framkvæmdir að mati sumra. „Einn daginn fengum við bara bréf – og þá er ég að tala um „inn um lúguna bréf“ – frá manni sem sagði okkur frá þessari upplifun sinni í Eistlandi. Hann sagði okkur ennfremur að netfangið á heimasíðu okkar væri í einhverju rugli og það væri ekki hægt að senda okkur tölvupóst,“ segir Árni. Hann sagði að „fyrir einstaka vörur væri þess virði að leggja extra mikið á sig“ og prentaði út bréfið og fór með það á pósthús, í stað þess að gefast upp á okkur. Þetta er auðvitað ákveðið afrek í bókum okkar kynslóðar og því ekki annað hægt en að taka manninn alvarlega,“ segir Árni um Kaj. Kaj Kekki þekkir hinsvegar ágætlega til landsins þar sem hann kom hingað í nokkrar keppnisferðir í handbolta fyrir einhverjum árum, þá bæði sem þjálfari finnska landsliðsins og keppandi í meistaradeild Evrópu.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira