Hafa skal það sem sannara reynist Eyþór L. Arnalds skrifar 5. nóvember 2015 07:00 Björg Eva Erlendsdóttir stjórnarmaður og fv. stjórnarformaður RÚV skrifar grein í Fréttablaðið í gær þar sem hún segir: „Skýrsla Eyþórs var rýnd af öðrum fjölmiðlum, með almannatengslaráðgjafa, áður en stjórn RÚV sá hana.“ Þetta er alrangt. Stjórnarformaður RÚV fékk skýrsluna 5 vikum áður en hún var birt og afhent öðrum fjölmiðlum. Reyndar var starfsfólk RÚV með skýrsluna allan þann tíma. Björg Eva hlýtur að vera upplýst um þessar staðreyndir. Ekki veit ég hvaðan sú hugmynd kemur í huga Bjargar Evu að almenningstengslaráðgjafi hafi rýnt skýrsluna með öðrum fjölmiðlum áður en stjórn RÚV sá hana en sú tilgáta er vægast sagt fjarstæðukennd. Það er ekki sæmandi stjórnarmanni í RÚV að halda fram fullyrðingum sem þessum. Það er hvimleiður ávani í íslenskri umræðu að kasta fram dylgjum. Þessi umræðuleið er sérstaklega áberandi hjá þeim sem vilja ekki taka málefnalega umræðu um málin. Þá er farið í manninn en ekki boltann. Björg Eva væri maður að meiri með því að biðjast afsökunar á þessum rangfærslum. Nefnd um starfsemi og rekstur RÚV sem menntamálaráðherra skipaði skilaði af sér skýrslu sem ráðherra sagði góðan grunn undir umræðuna. Því miður hafa of margir forðast að ræða efnisatriði og hvernig best er að bæta rekstur RÚV. Ég er þess fullviss að skýrslan getur nýst stjórn RÚV vel til að fara yfir rekstur RÚV og vona ég að teknar verði skynsamlegar ákvarðanir byggðar á staðreyndum. Það er góður siður að horfast í augu við vandann þegar hann blasir við. Afneitun skilar aldrei góðum árangri. RÚV hefur hvatt til opinnar umræðu við eiganda sinn, þjóðina, og farið hringferð í kringum landið nú í október. Er ekki nær að ræða um rekstrarvandann og lausnir á honum frekar en að reyna að kasta fram órökstuddum og röngum samsæriskenningum? Ég er viss um að tíma stjórnarmanns RÚV væri betur varið í að fara yfir vandann af yfirvegun. Það væri líka best fyrir RÚV. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Sjá meira
Björg Eva Erlendsdóttir stjórnarmaður og fv. stjórnarformaður RÚV skrifar grein í Fréttablaðið í gær þar sem hún segir: „Skýrsla Eyþórs var rýnd af öðrum fjölmiðlum, með almannatengslaráðgjafa, áður en stjórn RÚV sá hana.“ Þetta er alrangt. Stjórnarformaður RÚV fékk skýrsluna 5 vikum áður en hún var birt og afhent öðrum fjölmiðlum. Reyndar var starfsfólk RÚV með skýrsluna allan þann tíma. Björg Eva hlýtur að vera upplýst um þessar staðreyndir. Ekki veit ég hvaðan sú hugmynd kemur í huga Bjargar Evu að almenningstengslaráðgjafi hafi rýnt skýrsluna með öðrum fjölmiðlum áður en stjórn RÚV sá hana en sú tilgáta er vægast sagt fjarstæðukennd. Það er ekki sæmandi stjórnarmanni í RÚV að halda fram fullyrðingum sem þessum. Það er hvimleiður ávani í íslenskri umræðu að kasta fram dylgjum. Þessi umræðuleið er sérstaklega áberandi hjá þeim sem vilja ekki taka málefnalega umræðu um málin. Þá er farið í manninn en ekki boltann. Björg Eva væri maður að meiri með því að biðjast afsökunar á þessum rangfærslum. Nefnd um starfsemi og rekstur RÚV sem menntamálaráðherra skipaði skilaði af sér skýrslu sem ráðherra sagði góðan grunn undir umræðuna. Því miður hafa of margir forðast að ræða efnisatriði og hvernig best er að bæta rekstur RÚV. Ég er þess fullviss að skýrslan getur nýst stjórn RÚV vel til að fara yfir rekstur RÚV og vona ég að teknar verði skynsamlegar ákvarðanir byggðar á staðreyndum. Það er góður siður að horfast í augu við vandann þegar hann blasir við. Afneitun skilar aldrei góðum árangri. RÚV hefur hvatt til opinnar umræðu við eiganda sinn, þjóðina, og farið hringferð í kringum landið nú í október. Er ekki nær að ræða um rekstrarvandann og lausnir á honum frekar en að reyna að kasta fram órökstuddum og röngum samsæriskenningum? Ég er viss um að tíma stjórnarmanns RÚV væri betur varið í að fara yfir vandann af yfirvegun. Það væri líka best fyrir RÚV.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar