Guðmundur vann heims- og Evrópumeistara Frakka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2015 17:56 Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins. Vísir/Getty
Guðmundur Guðmundsson stýrði danska landsliðinu til sigurs á heims-, Evrópu- og Ólympíumeisturum Frakka í kvöld í fyrsta leiknum á æfingamótinu í Noregi. Danir unnu Frakka 23-22 en Frakkar skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins og sigurinn var því öruggari en tölurnar gefa til kynna. Gulldeildin heldur áfram í kvöld þegar Norðmenn taka á móti Íslendingum. Mörkin dreifðust vel hjá lærisveinum Guðmundar. Mikkel Hansen var markahæstur með fjögur mörk en átta leikmenn skoruðu síðan tvö mörk. Mikkel Hansen var valinn maður leiksins en dönsku fjölmiðlunum fannst þó að markvörðurinn Niklas Landin hefði átt þau verðlaun meira skilin. Danir tóku frumkvæðið í byrjun leiks og komust bæði í 3-1 og 5-3 í upphafi leiks. Frakkar fóru þá í gang, skoruðu þrjú mörk í röð og komust yfir í 6-5. Frakkar voru síðan 7-6 yfir þegar 10 mínútur voru liðnar af fyrri hálfleiknum en þá náðu Danir frábærum kafla. Danska liðið skoraði fimm mörk í röð og fékk ekki á sig mark í fimmtán mínútur. Claude Onesta, þjálfari Frakka, þurfti að taka leikhlé í stöðunni 11-7 fyrir Dani en þá voru tæpar sex mínútur eftir af hálfleiknum. Frakkar minnkuðu muninn niður í tvö mörk í tvígang en Peter Balling Christensen skoraði á lokasekúndum hálfleiksins og Danir voru því 13-10 yfir í hálfleik. Danir bættu við í upphafi seinni hálfleiksins og voru komnir sex mörkum yfir, 17-11, eftir rúmlega átta mínútna leik. Danir voru með gott forskot allan hálfleikinn eða þar til tvær síðustu mínúturnar þegar Frakkar skoruðu þrjú mörk í röð á stuttum tíma og settu með því spennu í leikinn. Guðmundur tók þá leikhlé og Danir náðu að spila út síðustu sóknina og tryggja sér sigurinn.
Handbolti Mest lesið Endurnýja kynnin: „Stórar skoðanir en ekki endilega góðar skoðanir“ Golf Dæmdur ofbeldismaður keppir á Opna breska í ár Golf Körfuboltakvöld í Boston: Nablinn tók viðtal við Ice Cube og sættist við Pargo Körfubolti Skærasta stjarna Sviss fær lítið að spila á EM en allir vilja hitta hana Fótbolti Getur verið erfitt að kveðja: „Það var aðeins grátið“ Sport Náðu ekki að bjarga lífi nítján ára vonarstjörnu Sport Gæti fengið átta milljarða króna Formúla 1 Yamal tekur óhræddur við tíunni Fótbolti Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Körfubolti Nýir erlendir leikmenn halda áfram að streyma í botnliðið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Sjá meira