KR enn án stiga í Lengjubikarnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. febrúar 2015 22:45 Þórir Guðjónsson skoraði sigurmark Fjölnis gegn KR í Egilshöllinni. vísir/daníel
Fimm leikir fóru fram í Lengjubikar karla í fótbolta í dag.Í fyrsta leik dagsins unnu Skagamenn 2-0 sigur á Íslandsmeisturum Stjörnunnar. KR-ingar eru enn án stiga í riðli 3 en bikarmeistararnir töpuðu fyrir Fjölni í Egilshöllinni í dag, 1-0. Þórir Guðjónsson skoraði eina mark leiksins á 30. mínútu en Fjölnir vann fyrsta leik sinn í Lengjubikarnum einnig 1-0, gegn KA. Í sama riðli vann KA 2-0 sigur á Fram í leik tveggja 1. deildarliða í Boganum á Akureyri. Atli Sveinn Þórarinsson og Ævar Ingi Jóhannesson skoruðu mörkin á síðustu 20 mínútum leiksins. Akureyringar eru með þrjú stig eftir tvo leiki en Fram er enn án stiga. HK vann óvæntan sigur á FH í riðli 1 á þriðjudaginn og Kópavogsbúar fylgdu honum eftir með því að rúlla yfir BÍ/Bolungarvík í Kórnum í dag. Úrslitin voru ráðin í hálfleik en HK skoraði fjögur mörk á 10 mínútna kafla í fyrri hálfleik. Lærisveinar Þorvaldar Örlygssonar létu eitt mark duga í seinni hálfleik. Lokatölur 5-0, HK í vil. Guðmundur Atli Steinþórsson og Aron Þórður Albertsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir HK og Árni Arnarson eitt. Í riðli 3 unnu Keflvíkingar sigur á Þórsurum með tveimur mörkum gegn einu. Jóhann Helgi Hannesson kom Þór yfir á 34. mínútu og þannig var staðan fram á 77. mínútu þegar nafni hans Birnir Guðmundsson jafnaði metin úr vítaspyrnu. Jóhann Birnir skoraði svo öðru sinni úr vítaspyrnu á lokamínútunni og tryggði Keflvíkingum stigin þrjú. Keflavík er með sex stig í riðli 3, ásamt ÍA. Þórsarar eru hins vegar með þrjú stig sem þeir fengu fyrir sigur á Fjarðabyggð síðasta sunnudag.Úrslit dagsins: ÍA 2-0 Stjarnan HK 5-0 BÍ/Bolungarvík Keflavík 2-1 Þór KA 2-0 Fram KR 0-1 Fjölnir
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira