Vilja stórefla leigumarkaðinn Bjarki Ármannsson skrifar 14. apríl 2014 22:34 Gunnar Axel er núverandi formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. Mynd/Aðsend „
Við ætlum að stuðla að byggingu 500, minni og meðalstórra, hagkvæmra íbúða á næstu 4 árum með sérstaka áherslu á fjölbreytt búsetuform - ekki síst leiguhúsnæði á viðráðanlegum kjörum,“ segir Gunnar Axel Axelsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, en flokkurinn kynnti helstu áherslur sínar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í kvöld. Þá kynnti Samfylkingin einnig áherslur sínar varðandi barnafjölskyldur. „Okkar framtíðarsýn er sú að þjónustugjöld leik- og grunnskóla lækki til samræmis við það sem tíðkast í nágrannalöndum okkar. Þess vegna viljum við endurskoða og hækka tekjuviðmið sérstakra afsláttarkjara, auka systkinaafslátt umtalsvert og setja þak á þjónustugjöld hverrar barnafjölskyldu,“ segir Gunnar Axel. „Hafnarfjörður er náttúrulega fyrst og fremst fjölskyldubær.“ Gunnar Axel kynnti einnig hugmyndir varðandi uppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar. Hann segir að nú sé kominn tími til þess að byggja upp verslun og þjónustu á Flensborgarhöfninni. „Okkar framtíðarsýn er sú að stækka miðbæinn og hefja uppbyggingu á spennandi veitingahúsa- og verslunarsvæði við Flensborgarhöfnin,“ segir Gunnar Axel og heldur áfram: „Þar viljum við taka vel heppnað hafnarsvæði í miðborg Reykjavíkur til fyrirmyndar. Hafnarfjörður á að standa undir nafni og státa sig af af glæsilegu hafnarsvæði þar sem verslun, þjónusta og veitingahúsarekstur blómstrar.“ Gunnar Axel er formaður bæjarráðs og var kjörinn oddviti flokksins í síðasta mánuði. Hann segir að sveitastjórnarkosningarnar nú séu þær mikilvægustu eftir hrun.
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira