Nýta þarf Hörpu betur yfir sumartímann Snærós Sindradóttir skrifar 23. mars 2014 09:39 Halldór Guðmundsson Forstjóri Hörpu er stoltur af þeim árangri sem náðst hefur. MYND/Halldór
Salir Hörpu voru í notkun tvo þriðju hluta árs í fyrra. Þetta kemur fram í upplýsingum frá tónlistar- og ráðstefnuhúsinu um nýtingu á sölum hússins. Best nýtti salur hússins, Kaldalón, er jafnframt sá minnsti en hann var í notkun 316 daga úr ári, eða um 87 prósent ársins. Fæstir viðburðir voru í Silfurbergi, helsta ráðstefnusal hússins, en hann var í notkun 168 daga ársins. Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu, segir að mest séu sóknarfærin í ráðstefnuhaldi. „Við jukum ráðstefnutekjurnar um rúmlega 40 prósent í fyrra og við sjáum mikil sóknarfæri þar.“ Hann segir að glögglega megi sjá árstíðabundinn mun á nýtingu hússins. „Við þurfum mest að bæta okkur að sumri til. Þá er nýtingin minnst þrátt fyrir að mannfjöldinn sem streymir hér í gegn sé sá sami og yfir veturinn.“ Halldór segir að fjöldann yfir sumarið megi rekja til ferðamanna sem koma og skoða Hörpu en þó vanti upp á að í húsinu séu nógu margir viðburðir sem sérstaklega sé beint að ferðamönnum. „Nú þegar húsið hefur ekki verið opið nema í tæp þrjú ár er þetta komið í ótrúlega hátt nýtingarhlutfall. Við höfum verið að reyna að læra af tónlistar- og ráðstefnuhúsum í öðrum löndum en hliðstæðurnar eru frekar vandfundnar. Í alþjóðlegum samanburði er miðað við að raunhæf hámarksnýting sé 80 prósent. Við erum því mjög stolt af því hve nýtingin er góð.“ Að sögn Halldórs kemur ekki til greina að lækka leigugjald fyrir sali Hörpu með það að markmiði að laða fleiri aðila að húsinu. „Þegar nýtingin er svo mikil sem raun ber vitni og Harpa að berjast í bökkum fjárhagslega, eins og allir vita, þá förum við ekki að lækka leigugjaldið.“ Hann segir að nú þegar megi búast við fleiri ráðstefnum í húsið. „Ráðstefnur eru bókaðar mörg ár fram í tímann, það var því algjörlega óraunsætt á sínum tíma að ætlast til þess að nýopnað hús hýsti margar ráðstefnur fljótlega eftir opnun.“ Guðfinna S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Hörpu, segir að sóknarfæri séu vissulega til staðar. „Við stjórnin erum í stefnumótunarvinnu og nýting hússins er örugglega eitt af því sem verður til umræðu.“
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira