Lungnateppa orðin fjórða algengasta dánarorsök Íslendinga Svavar Hávarðsson skrifar 23. mars 2014 09:39 Reykingar eru langstærsti áhættuþátturinn vegna lungnateppu – sem er lífshættulegur sjúkdómur og ólæknandi. fréttablaðið/ap
Talið er að 16.000 til 18.000 Íslendingar 40 ára og eldri glími við langvinna lungnateppu (LLT). Einn af hverjum tíu hefur talsverð eða alvarleg einkenni. Sjúkdómurinn er nú fjórða algengasta dánarorsök Íslendinga. Sjúkdómsbyrðin vegna langvinnra öndunarfærasjúkdóma er álíka mikil og vegna brjósta- og blöðruhálskrabbameins, krabbameins í eggjastokkum og í endaþarmi – samtals. Þetta kemur fram í skrifum Hans Jakobs Beck, yfirlæknis lungnateymis Reykjalundar, og Guðbjargar Pétursdóttur, hjúkrunar- og teymisstjóra, í nýjasta fréttablaði SÍBS. Hans Jakob segir að langvinnir öndunarfærasjúkdómar fari hljótt miðað við hversu miklum heilsufarsskaða þeir valda. „Þetta er mikið rætt á alþjóðavettvangi, hversu hulið þetta vandamál er. Fólk ber sjúkdóminn ekki utan á sér fyrr en hann er langt genginn og skýringarinnar er kannski að leita þar,“ segir Hans Jakob og bætir við að rannsóknir hafi sýnt að 18 til 19 prósent fólks 40 ára og eldri uppfylli greiningarskilmerki fyrir sjúkdóminn. Helmingurinn af þeim er á stigi eitt og einkennalaus með öllu.Hans Jakob Beck„Hinn helmingurinn er með sjúkdóminn á því stigi að hann fer að draga úr lífsgæðum fólks og einkenni fara að koma í ljós,“ segir Hans Jakob og bætir við að langvinn lungnateppa sé ólæknandi en þó hægt að halda einkennum niðri með réttri meðferð. Þegar horft er til aukinnar dánartíðni hérlendis af völdum lungnateppusjúkdóma verður að hafa hugfast að margir af fjölmennustu árgöngum þjóðarinnar, fólk fætt á árunum 1950 til 1965, er að komast á þann aldur sem sjúkdómarnir leggjast á fólk. Því má búast við því að næstu tíu til tuttugu árin muni ástandið verða alvarlegt, áður en samdráttur í reykingum síðustu ára fer að segja til sín í fækkun sjúkdómstilfella. Mikill árangur hefur náðst í baráttunni við hjarta- og æðasjúkdóma á undanförnum árum, en lungnasjúkdómar eru ekki ofarlega í huga fólks. Þessu er full ástæða til að breyta að sögn Hans Jakobs. Þá sé eftir að minnast á þjóðfélagslegan kostnað, en lungnalyf vega sífellt meira í heildarlyfjakostnaði þjóðarinnar.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira