Stóra-Laxá einn af 91 virkjanakostum Svavar Hávarðsson skrifar 23. mars 2014 09:39 Stóra-Laxá í Hreppum er einn þeirra virkjanakosta sem Landsvirkjun vill láta skoða. fréttablaðið/svavar
Tillögur að nýjum virkjanakostum til meðferðar við 3. áfanga rammaáætlunar eru ekki síst til að kanna hugarfar landsmanna gagnvart orkunýtingu. Tillögur um nýja kosti eru allar frá Orkustofnun komnar og því engar óskir frá orkufyrirtækjum að baki þeim. Nokkrar tillögur markast af staðsetningu vegna veikleika í meginflutningskerfi raforku. Kristinn Einarsson, yfirverkefnisstjóri auðlindanýtingar hjá Orkustofnun, útskýrir að 43 tillögur um virkjanakosti af 91 hafi komið frá orkufyrirtækjum. Af þeim sendi Orkustofnun 42 áfram til umfjöllunar verkefnisstjórnar. Aðrir af 91 virkjanakosti koma frá Orkustofnun, og þar af 27 nýir. „Það er æskilegt fyrir verkefnastjórnina að hafa sem flesta kosti með; að þeir spanni allt litrófið. Bæði góðir og slæmir hvort sem það varðar hagkvæmni eða umhverfislega þætti,“ segir Kristinn og bætir við að Orkustofnun hafi talið að auka þyrfti fjölbreytni virkjunarkosta í vatnsafli. Bæði hvað varðar stærð, að minni kostir kæmu inn, og svo vegna staðsetningarinnar. „Dreifikerfi raforku er of veikt til að senda orku hvert sem er,“ segir Kristinn. Hann játar því að virkjanir í Hofsá og Hafralónsá á Norðausturlandi séu nærtækt dæmi vegna stöðu raforkuflutninga á því svæði. Kristinn segir að virkjanakostirnir séu þeir vænlegustu sem birtir voru í Hvítbók iðnaðarráðuneytisins frá árinu 1994, þar sem gefið var yfirlit um orkukosti á sínum tíma. „Við bættum svo við tveimur kostum í vindorku til viðbótar við hugmyndir Landsvirkjunar. Annars vegar Þröskuldum vegna þess að það skortir orku á Vestfjörðum, og einnig við Þorlákshöfn. Þar vildum við láta skoða hvort menn vilja vindmyllur á láglendi nálægt byggð,“ segir hann og bætir við að þannig séu tillögurnar hugsaðar til að kanna viðhorf landsmanna til orkunýtingar. „Það er okkar lögbundna hlutverk að leggja lista tillagna fyrir verkefnastjórnina og við tökum í sjálfu sér enga afstöðu til þeirra að öðru leyti,“ segir Kristinn. Hann segir að rammaáætlun sé á skipulagsstigi og smáatriði ekki til umfjöllunar; það falli undir umhverfismat framkvæmda. Meiningin með rammaáætlun sé því að lágmarka kostnað. „Menn geti strax sagt að einn eða annar kostur komi ekki til greina. Hlutverkið er að grófsigta virkjanakostina.“Orkustofnun að baki Orkustofnun sendi verkefnastjórn þriðja áfanga rammaáætlunar bréf 10. mars þar sem lagður er fram 91 virkjunarkostur til umfjöllunar. Þar er um að ræða 49 virkjunarkosti í vatnsafli, 38 kosti í jarðvarma auk fjögurra vindorkuvera. Um 34 virkjunarkosti í vatnsafli og 30 í jarðvarma hefur verkefnisstjórn fjallað um áður, samtals 64 kosti. Nýir kostir eru 15 í vatnsafli, átta í jarðvarma og fjórir í vindorku, eða 27 samtals.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira